Auglýsing um deiliskipulag í hlíðum Kubba ofan Holtahverfis, Ísafirði

 

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi í hlíðum Kubba ofan

Holtahverfis, Ísafirði skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari

breytingum. Meðfylgjandi tillögunni er auglýst umhverfisskýrsla í samræmi við lög um

umhverfismat áætlana nr. 105/2006. 

 

Deiliskipulagstillagan tekur til svæðis sem liggur sunnan byggðarinnar í Holtahverfi, Ísafirði.

Stærð svæðisins er um 14 hektarar og er í eigu Ísafjarðarbæjar. Svæðið liggur undir hlíðum

Kubba og er töluverður bratti á svæðinu. Svæðið afmarkast af Hafrafellshálsi til austurs,

hlíðum Kubba í suður og Úlfsár í vestri.

 

Gert er ráð fyrir að reisa snjóflóðavarnargarð á svæðinu rétt fyrir ofan byggðina við

Holtahverfi. Garðurinn verður 260 metra langur og allt að 18 metra hár. Í Bröttuhlíð ofarlega

í hlíðum Kubba er afmarkað svæði undir stoðvirki. Stærð svæðisins er um 4,5 hektarar og

mun vegslóði tengjast því tímabundið meðan á framkvæmdum stendur.

 

Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði og á

heimasíðu Ísafjarðarbæjar www.isafjordur.is frá og með 7. maí 2009 til og með 4. júní 2009.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir

við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 18. júní 2009.

 

Skila skal inn athugasemdum á bæjarskrifstofur Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu,

Hafnarstræti 1, Ísafirði. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir

tilskilinn frest teljast samþykkir henni.

Ísafirði 28. apríl 2009.

 

Jóhann Birkir Helgason, sviðstjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs.

 

Gögn:

Deiliskipulag í hlíðum Kubba (pdf)

Greinargerð með deiliskipulagi (pdf)

Umhverfisskýrsla vegna snjóflóðavarnargarðs (pdf)