Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 – tillaga (desember 2009)
Tillaga að aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 hefur nú verið auglýst. Frestur til að skila inn athugasemdum er til sunnudagsins 9. ágúst 2009. Skriflegum athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofur Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu Hafnarstræti 1, Ísafirði.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni. Aðalskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á bæjarskrifstofum í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, Skipulagsstofnun, á heimasíðu Ísafjarðarbæjar www.isafjordur.is og á heimasíðu Skipulagsstofnunar www.skipulag.is frá og með sunnudeginum 28. júní 2009 til og með sunnudagsins 26. júlí 2009.
Greinargerð og viðaukar:
Viðauki D
Uppdrættir
Staðan:
Nóvember-desember 2009: Uppfærsla á greinargerð í samræmi við athugasemdir og prófarkarlestur. Uppsetning á greinargerð og lokafrágangur á greinargerð og uppdráttum.
September-október 2009: Umhverfisnefnd og bæjarstjórn fjalla um athugasemdirnar (seinni umræður). Bæjarstjórn samþykkti, þann 22. október, tillögur umhverfisnefndar um afgreiðslu á framkomnum athugasemdum.
Júní-ágúst 2009: Skipulagstillagan var auglýst frá 28. júní, í samræmi við skipulags- og byggingarlög. Frestur til að skila inn athugasemdum var 9. ágúst. Tíu athugasemdir bárust.
Apríl-maí 2009: Fyrri umræða bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar um aðalskipulagið fór fram þann 2.4. Aðalskipulagið sent til umsagnar Skipulagsstofnunar - uppdrætti og greinargerð ásamt viðaukum frá 16. apríl má nálgast hér á heimasíðunni. Skipulagshópar norðan og sunnan Djúps funda ásamt umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar í lok apríl. Áætlað er að auglýsa aðalskipulagið með formlegum hætti, í samræmi við skipulagsreglugerð, í maí.
Febrúar- mars 2009: Unnið úr umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Umhverfisnefnd leggur til, þann 25.3., að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar auglýsi aðalskipulagið formlega.
Janúar 2009: Borgarafundir þar sem drög að aðalskipulaginu eru kynnt.
Desember 2008: Aðalskipulagið sent lögbundnum umsagnaraðilum til umsagnar og jafnframt kynnt almenningi. Skipulagshópur norðan Djúps fundar 3. desember.
Nóvember 2008: Umhverfisnefnd vísar tillögum að Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008 – 2020 til meðferðar í bæjarstjórn samkvæmt skipulags og byggingarlögum. Bæjarstjórn fjallar um aðalskipulagið á bæjarstjórnarfundi 20.11. Skipulagshópur sunnan Djúps fer yfir skipulagstillöguna á fundi 26.11. Þéttbýlisuppdrættir ásamt uppfærðri greinargerð og uppfærðum dreifbýlisuppdráttum birt á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.
September – október 2008: Fundir og annað samráð við landeigendur eyðijarða. Áframhaldandi vinna við gagnaöflun, úrvinnslu grunnupplýsinga, stefnumörkun og framsetningu greinargerðar og uppdrátta. Vinnufundur Teiknistofunnar og umhverfisnefndar haldinn 26.9. þar sem stefnan í aðalskipulaginu, einkum hugsanleg hverfisvernd, var rædd.
Ágúst 2008: Stefnumörkun í einstökum málaflokkum, m.a. hverfisvernd í þéttbýli. Unnið að gagnaöflun, úrvinnslu grunnupplýsinga, stefnumörkun og framsetningu greinargerðar og uppdrátta.
Júní-júlí 2008: Kynning á niðurstöðum skipulagshóps norðan Djúps (birt með fyrirvara um niðurstöður skipulagshóps sunnan Djúps). Kynning á dreifbýlisuppdrætti og drögum að greinargerð sunnan Djúps. Áframhaldandi úrvinnsla stefnumótunarvinnu. Matslýsing umhverfismats áætlana lögð fyrir Skipulagsstofnun.
Maí 2008: Áfram unnið með skipulagstillögu sunnan Djúps, greinargerð og fyrstu drög að uppdrætti lögð fram. Fundir skipulagshóps í lok maí. Stefnumótun nefnda Ísafjarðarbæjar.
Mars – apríl 2008: Skipulagshópur norðan Djúps samþykkti að kynna drög að niðurstöðum hópsins fyrir félagsmönnum sínum. Stefnumótun nefnda Ísafjarðarbæjar.
Febrúar 2008: Fundir með fulltrúum íbúsamtaka og hagsmunaaðila í bæjarkjörnum: Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Holtahverfi og nágrenni, Hnífsdal, Eyrinni og efri bæ.
Nóvember 2007-janúar 2008: Fundir skipulagshópa norðan og sunnan Djúps. Farið gróflega yfir meginþætti í einstökum köflum greinargerðarinnar sunnan Djúps . Áfram unnið með uppdrátt og greinargerð norðan Djúps. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hélt erindi fyrir kjörna fulltrúa: Hinir fögru fimm - Ísafjarðarbær, bær tækifæranna.
Október 2007: Fundir skipulagshópa. Fyrstu drög að skipulagstillögu sunnan Djúps.
September 2007: Fundir skipulagshópa. Grunnur að skipulagstillögu skipulagshóps sunnan Djúps. Frekari úrvinnsla á uppdrætti og greinargerð skipulagshóps norðan Djúps (Hornstrandasvæðis). Stefnumótun nefnda hjá Ísafjarðarbæ.
Ágúst 2007: Grunnvinna skipulagshóps sunnan Djúps. Fulltrúar í skipulagshópi norðan Djúps (Hornstrandasvæðis) leita umsagnar hjá félagsmönnum sínum.
Júlí 2007: Ýmis konar grunnvinna skipulagsráðgjafa.
Laugardaginn 9. júní var haldið málþing á Þingeyri um skipulagsmál í Ísafjarðarbæ. Málþingið bar yfirskriftina Auðlindir og lífsgæði sunnan Djúps og hægt er að nálgast efni og fyrirlestra þingsins hér á síðunni.
Júní 2007: Fyrsti fundur skipulagshóps sunnan Djúps var haldinn 6. júní. Nánari upplýsingar um hópinn er að finna hér á síðunni.
Apríl – maí 2007: Skipulagshópur Hornstrandasvæðis hélt vinnufundi. Hópurinn hefur gert drög að niðurstöðum sem fulltrúar félaga munu kynna sínum félagsmönnum í sumar. Einnig var unnið undirbúningi skipulagshóps hagsmunaaðila sunnan Djúps.
Mars 2007: Skipulagshópur Hornstrandasvæðis hóf störf. Kynning á vinnu við aðalskipulagið í þéttbýliskjörnum í lok mars. Nánari upplýsingar og ýmis gögn er varða skipulagshópinn og kynninguna er að finna hér á síðunni.
Helgina 26.-27. janúar 2007 var haldin ráðstefna um skipulagsmál á Hornstrandasvæðinu. Í framhaldinu verður settur á fót sérstakur skipulagshópur hagsmunaaðila. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og samráðið má nálgast hér á síðunni.
Janúar - febrúar 2007: Nefndir Ísafjarðarbæjar vinna að stefnumótun í þeim málaflokkum sem til umfjöllunar eru í aðalskipulaginu.
Haustið 2006 var auglýst eftir þátttöku félagasamtaka og fyrirtækja í skipulagshóp aðalskipulagsins. Sjá nánar undir liðnum samráð hér á síðunni.
Í september 2006 var lokið við Áfangaskýrslu 1 sem fjallar um gögn og aðferðir. Hana má nálgast hér.
Sumar 2006: Formleg vinna við Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar hefst.
Skipulagsráðgjafi er Teiknistofan Eik ehf, Ísafirði. Hægt er að senda skipulagsráðgjafa athugasemdir eða ábendingar um gögn er varða aðalskipulagsvinnuna með því að smella á hnappinn hér til hliðar.
Útgefið efni
Umsóknir og eyðublöð
Gagnlegar flýtileiðir
Bæjarfulltrúar
Fundargerðir
- Umhverfisnefnd - 10.3.2010
- Bæjarráð - 8.3.2010
- Félagsmálanefnd - 5.3.2010
- Bæjarstjórn - 4.3.2010
- Bæjarráð - 1.3.2010
- Atvinnumálanefnd - 26.2.2010




