Þjónustumiðstöð (áhaldahús)
Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar (áhaldahús) er við Stakkanes á Ísafirði.
Póstfang: ahaldahus@isafjordur.is - Sími: 450 8240 - Fax: 456 3845
Bæjarverkstjóri er Guðjón Jóhannes Jónsson.
Þjónustumiðstöðin veitir stofnunum og bæjarbúum margvíslega þjónustu. Hún sér m.a. annars um:
- að halda við götum og opnum svæðum
- að halda við og endurnýja veitukerfi
- að merkja og mála götur og setja upp skilti
- að leigja út ýmis tæki
- meindýravarnir
- hundaeftirlit
- snjómokstur
