Þjónusta Ísafjarðarbæjar

Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði

Bæjarskrifstofur Ísafjarðarbæjar eru til húsa á 2.h. í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1 á Ísafirði.

Í afgreiðslunni er veitt almenn þjónusta við bæjarbúa sem og aðra sem þess óska. Þar er einnig sameiginleg símsvörun og upplýsingagjöf fyrir öll svið stjórnsýslunnar: Stjórnsýslusvið, Fjármálasvið, Umhverfissvið og Skóla- og fjölskylduskrifstofu og Fasteignir Ísafjarðarbæjar.
Skrifstofustjóri er Þorleifur Pálsson, bæjarritari.

Afgreiðslan er opin mánudaga-föstudaga kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma kl. 8.00-16.10.
Ath. að tæknideildin er opin kl. 10:00-12:00, mánudaga-föstudaga.

Sími: 450 8000 - Fax:450 8008
Póstfang:  isafjordur@isafjordur.is



Móttaka erinda

Til Ísafjarðarbæjar berast að jafnaði um 60 erindi á viku í pósti eða um 3.000 erindi á ári. Þar að auki berst daglega mikill fjöldi tölvupósta til bæjarstjóra og sviðsstjóranna fjögurra. Mikið er lagt upp úr því að stjórnsýsla Ísafjarðarbæjar sé sem skilvirkust þannig að mál þurfi ekki