Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er skipuð 9 bæjarfulltrúum sem eru kjörnir samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.
Bæjarstjórn fer með stjórn Ísafjarðarbæjar og jafnframt með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarfélagsins að svo miklu leyti sem hún hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn. Hún kýs fulltrúa í bæjarráð og aðrar nefndir og ráð sem eru henni til ráðgjafar í hinum ýmsu málaflokkum. Bæjarstjórn stjórnar fjármálum bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja. Einnig ákveður hún stjórnkerfi bæjarfélagsins og ræður bæjarstjóra og aðra helstu starfsmenn bæjarfélagsins. Bæjarstjórn er í forsvari fyrir bæjarfélagið og skal gæta hagsmuna þess og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.
Bæjarstjórn heldur reglulega fundi 1. og 3. fimmtudag hvers mánaðar og hefjast þeir að jafnaði kl. 17. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess. Bæjarstjóri getur ákveðið í samráði við forseta bæjarstjórnar að fresta eða fella niður fund ef sérstaklega stendur á.
Frekari upplýsingar er að finna í bæjarmálasamþykkt Ísafjarðarbæjar, svo sem fundargerðir allra nefnda og ráða sem og reglugerðir og samþykktir varðandi bæjarstjórnina.
Allar upplýsingar um meðferð mála hjá bæjarstjórn og bæjarráði gefa bæjarstjóri eða bæjarritari.
Bæjarfulltrúar
Aðgerðir meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar til uppbyggingar í atvinnulífi.
Málefnasamningur 2. júní 2006
Útgefið efni
Umsóknir og eyðublöð
Gagnlegar flýtileiðir
Bæjarfulltrúar
Fundargerðir
- Umhverfisnefnd - 10.3.2010
- Bæjarráð - 8.3.2010
- Félagsmálanefnd - 5.3.2010
- Bæjarstjórn - 4.3.2010
- Bæjarráð - 1.3.2010
- Atvinnumálanefnd - 26.2.2010

