Daníel Jakobsson | laugardagurinn 28. janúar 2012
Flottur bæjarstjóri - hvetur foreldra til að taka þátt í skólastarfi
Vala konan mín sendi mér tölvupóst í s.l. viku með subjektinu - flottur bæjarstjóri.
Ég taldi náttúrulega að þarna væri hún að meina mig en svo var ekki. Hún var að benda mér á grein sem birtist í Járngerði, féttabréfi Grindavíkurbæjar og sjá má hér að neðan. Greinin er eftir Róbert Ragnarsson bæjarsstjóra Grindarvíkur.
Ég er sammála Völu, það er flott að taka þetta upp. Er þetta ekki svipað hjá okkur? Við eigum að taka meiri þátt í skólastarfinu og stuðla þannig að framgangi skólanna. Menntun barnanna okkar er ekki einkamál kennaranna. Ég vil gera orð Róberts að mínum og hvetja foreldra til að taka þetta til umhugsunar. Það ætla ég að gera.
Grein Róberts má sjá ef stutt er á meira hér að neðan en einnig má finna hana á http://www.grindavik.is/v/8421
Kær kveðja Daníel.
...Meira
