Menningarmálanefnd

119. fundur

Árið 2005, þriðjudaginn 27. desember kl. 15:00 hélt menningarmálanefnd fund á skrifstofu Ísafjarðarbæjar á 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

Þetta var gert.

1. Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2005.

Ákveðið hefur verið að bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2005, verði heiðraður í hófi sem haldið verður á 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, miðvikudaginn 28. desember n.k. og hefst kl. 15:00.

2. Fjárhagsáætlun ársins 2006. 2005-04-0035.

Ný afgreidd fjárhagsáætlun b-æjarsjóðs Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja kynnt og rædd hvað menningarmálanefnd varðar.

3. Bréf til formanna nefnda og sviðsstjóra, áherslupunktar Íbúasamtakanna Átaks á Þingeyri.

Lagt fram bréf undirritað af bæjarritara til formanna nefnda Ísafjarðarbæjar og sviðsstjóra dagsett 30. nóvember s.l., ásamt áherslupunktum frá Íbúasamtökunum Átaki á Þingeyri, unnið af stjórn samtakanna haustið 2005. Efni áherslupunktanna á erindi til flestra nefnda og sviða, en þó mis mikið.

Menningarmálanefnd mun fylgjast með þeim þáttum í bréfi íbúasamtakanna er varðar svið nefndarinnar.

4. Beiðni um styrk vegna endurútgáfu á hljómdiski Vilbergs Vilbergssonar. 2005-12-0047.

Borist hefur beiðni um styrk vegna endurútgáfu á hljómdiski Vilbergs Vilbergssonar, bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar árið 2001.

Menningarmálanefnd samþykkir styrkveitingu að fjárhæð kr. 300.000,-.
Við endurútgáfuna munu allmörg eintök koma í hlut Ísafjarðarbæjar, að kostnaðarlausu.

Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 16:25.

Þorleifur Pálsson, ritari.

Inga Ólafsdóttir, formaður.

Sigurborg Þorkelsdóttir. Hansína Einarsdóttir.