Íþrótta- og tómstundanefnd

54. fundur.

Miðvikudaginn 14. desember 2005 kl. 16:00 kom íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar saman í Gamla apótekinu á Ísafirði.
Á fundinum voru: Bryndís Birgisdóttir, formaður, Jón Hálfdán Pétursson, Jóna Benediktsdóttir, Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Gunnar Þórðarson, frkvstj. HSV, Sturla Páll Sturluson og Guðríður Sigurðardóttir.
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir ritaði fundargerð.

Þetta var gert:

  1. Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2005.
  2. Lögð fram tillaga að dagskrá fyrir kjör Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar, sem fram fari 29. desember kl. 17.00 í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
    Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir framkomna dagskrá.

  3. Gjaldskrá íþróttahúss Suðureyrar.
  4. Lögð fram tillaga að gjaldskrá íþróttahúss Suðureyrar.

    Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að gjaldskrá íþróttahúss Suðureyrar verði hin sama og í íþróttahúsunum á Þingeyri og Flateyri.

  5. Þjónustukaup í íþróttahúsum.
  6. Rætt um hvort búa þurfi til sérstakar reglur um þjónustukaup í íþróttahúsum.

    Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að búa til drög að reglum.

  7. Gjaldskrá Skíðasvæðis.
  8. Lögð fram tillaga að gjaldskrá Skíðasvæðis.
    Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til, að framlögð gjaldskrá verði samþykkt.

  9. Endurskoðun á þjónustu Skíðasvæðis.
  10. Rætt um endurskoðun á þjónustu Skíðasvæðis.

    Íþrótta- og tómstundanefnd ítrekar bókun sína frá 51. fundi þann 12. október s.l., þar sem nefndin leggur til við bæjarstjórn að skipaður verði 5 manna starfshópur til að endurskipuleggja þjónustustig og setja upp framtíðarsýn fyrir Skíðasvæðið.

  11. Þjónusta í Skíðaskála, Tungudal.
  12. Lagt fram minnisblað frá íþrótta- og tómstundafulltrúa um þjónustu í Skíðaskála, Tungudal.

    Lagt fram til kynningar.

  13. Önnur mál.

Rætt almennt um samstarf íþróttafélaga.

Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:15.

 

Bryndís Birgisdóttir, formaður.

Jón Hálfdán Pétursson. Jóna Benediktsdóttir.

Gunnar Þórðarson. Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.

Sturla Páll Sturluson. Guðríður Sigurðardóttir.