Fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar

229. fundur

Árið 2005, þriðjudaginn 22. nóvember kl. 16:00 kom fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar.
Mætt voru: Svanlaug Guðnadóttir, formaður, Kolbrún Sverrisdóttir, Elías Oddsson, Óðinn Gestsson, Jens Kristmannsson og Iðunn Antonsdóttir, grunnskólafulltrúi og Sigurlína Jónasdóttir, leikskólafulltrúi Ísafjarðarbæjar.Hluta fundarins sat Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Fundarritari var: Iðunn Antonsdóttir.

Leikskólamál:

1. Fréttabréf leikskólanna Bakkaskjóls og Eyrarskjóls fyrir nóvember 2005.

Fréttabréfin lögð fram til kynningar.

Grunnskólamál:

Mættir áheyrnarfulltrúar: Una Þóra Magnúsdóttir f.h. foreldra og Skarphéðinn Jónsson f.h. skólastjóra.

2. Fjárhagsáætlun. 2005-04-0035.

Ingibjörg María Guðmundsdóttir gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun.

Fræðslunefnd leggur áherslu á að kennslubúnaður, umhverfi og öryggisatriði grunnskólanna verði forgangsverkefni.

3. Tillaga um "nýjan grunnskóla". 2005-10-0069.

Tillaga frá Elíasi Oddssyni varðandi nýja skipan grunnskólamála í Ísafjarðarbæ lögð fram til umræðu.

Fræðslunefnd ræddi efnisatriði tillögunnar og nauðsyn þess að Ísafjarðarbær stuðli að nýbreytni í skólastarfi. Leikskóla – og grunnskólafulltrúa falið að vinna að framhaldi málsins.

4. Tilraunaverkefni um samstarf við Austur – Grænland. 2005-11-0088.

Lagt fram fréf frá Baldvin Kristjánssyni frá 18.11. 2005 til grunnskólafulltrúa Ísafjarðarbæjar varðandi tilraunaverkefni, sem felur í sér samstarf grunnskóla Ísafjarðarbæjar, eins skóla í Reykjavík og Menntamálaráðuneytis, um gerð kennsluefnis tengdu Austur – Grænlandi.

Fræðslunefnd felur grunnskólafulltrúa að fara á kynningarfund um málið sem haldinn verður í Menntamálaráðuneytinu 24. nóvember n.k.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:40.

Svanlaug Guðnadóttir, formaður.

Kolbrún Sverrisdóttir. Elías Oddsson.

Óðinn Gestsson. Jens Kristmannsson.

Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu.

Iðunn Antonsdóttir, grunnskólafulltrúi.