Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
306. fundur
Árið 2002, mánudaginn 26. ágúst kl. 17:00 kom bæjarráð Ísafjarðarbæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Þetta var gert:
1. Fulltrúar Vegagerðarinnar á Vestfjörðum viðræður við bæjarráð.
Mættir til fundar Gísli Eiríksson og Geir Sigurðsson, Vegagerðinni á Vestfjörðum, til viðræðna við bæjarráð um girðingarmál, um umferðarmál, um efnistöku og ýmsar verklegar framkvæmdir Vegagerðarinnar í sveitarfélaginu. Sigurður Mar Óskarsson bæjartæknifræðingur sat fundinn undir þessum lið.
2. Fundargerðir nefnda.
Félagsmálanefnd 20/8. 186. fundur.
4. tölul. Bæjarráð óskar eftir gögnum málsins.
5. tölul. Bæjarráð óskar eftir gögnum málsins.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Umhverfisnefnd 21/8. 153. fundur.
Sigurður Mar Óskarsson bæjartæknifræðingur sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
3. Bæjarstjóri mjólkurframleiðsla á norðanverðum Vestfjörðum. 2002-06-0035.
Lagðir fram minnispunktar Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra sem trúnaðarmál, dagsettir 22. ágúst sl., með upplýsingum um vinnu starfshóps varðandi mjólkurframleiðslu á norðanverðum Vestfjörðum.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í viðræðum um framgang málsins.
4. Félagsmálaráðuneytið skýrsla um félagsleg húsnæðismál sveitarfélaga. 2002-08-0056.
Lagt fram dreifibréf til sveitarfélaga frá félagsmálaráðuneytinu, dagsett 20. ágúst sl., þar sem vakin er athygli á nýrri skýrslu með tillögum um félagsleg húsnæðismál sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
5. Tónlistarskóli Ísafjarðar - fundargerðir.
Lagðar fram fundargerðir skólanefndar Tónlistarskóla Ísafjarðar frá 12. og 20. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.
6. Fjórðungssamband Vestfirðinga 47. fjórðungsþing Vestfirðinga. 2002-06-0002.
Lagt fram bréf ásamt fylgiskjali frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, dagsett 15. ágúst sl., með boðun á 47. fjórðungsþing Vestfirðinga haldið í Bolungarvík 30. og 31. ágúst nk. sem hefst kl. 13.00 og afrit af kjörbréfi fulltrúa Ísafjarðarbæjar á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
7. Brunabótafélag Íslands ágóðahlutagreiðsla 2002. 2002-08-0045.
Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum frá Bunabótafélagi Íslands, dagsett 16. ágúst sl., með tilkynningu um ágóðahlutagreiðslu til sveitarfélaga 2002.
Lagt fram til kynningar.
8. Bæjarstjóri fundur sveitarstjórna á norðanverðum Vestfjörðum. 2002-08-0058.
Lagt fram bréf Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra til hreppsnefndar Súðavíkurhrepps, bæjarráðs Bolungarvíkurkaupstaðar og Ísafjarðarbæjar, dagsett 21. ágúst sl., með drögum að dagskrá væntanlegs fundar fulltrúa sveitarfélaganna þriggja á norðanverðum Vestfjörðum sem halda á 28. ágúst nk. kl. 17.00.
Fulltrúar í bæjarráði ásamt bæjarstjóri sækja fundinn.
9. Bæjarstjóri skipan starfshóps bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og starfsmanna Orkubús Vestfjarða. 2002-08-0059.
Lagt fram afrit bréfs Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra til Starfsmannafélags Orkubús Vestfjarða, dagsett 20. ágúst sl., varðandi skipan starfshóps bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og starfsmanna Orkubús Vestfjarða.
Lagt fram til kynningar.
10. Andri Árnason hrl. áfrýjunarstefna í Hæstarétti. 2002-08-0052.
Lögð fram áfrýjunarstefna í Hæstarétti Íslands, dagsett 16. ágúst sl., þar sem Hörður Felix Harðarson hrl. f.h. umbjóðenda síns Auðuns J. Guðmundssonar áfrýjar til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Vestfjarða í málinu nr. E-118/2002.
Lagt fram til kynningar.
11. Bæjarstjóri félagsheimili á Flateyri.
Bæjarráð frestar málinu þar til skrifleg greinargerð liggur fyrir.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 20:03.
Þórir Sveinsson, ritari.
Guðni G. Jóhannesson, formaður bæjarráðs.
Ragnheiður Hákonardóttir Lárus Valdimarsson.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.
Magnús Reynir Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi.