Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
299. fundur
Árið 2002, mánudaginn 1. júlí kl. 17:00 kom bæjarráð Ísafjarðarbæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Þetta var gert:
1. Fundargerðir nefnda.
Hafnarstjórn 25/6. 65. fundur.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Kauptilboð Antons Magnússonar í Hjallaveg 21, efri hæð, Suðureyri. 2002-06-0033.
Lagt fram kauptilboð frá Antoni Magnússyni, Suðureyri, í Hjallaveg 21, efri hæð, Suðureyri.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa eignina til sölu og tilkynna jafnframt núverandi leigutaka um auglýsingu hennar.
3. Bréf Fjórðungssambands Vestfirðinga. - Mótun stefnu í menningarmálum á Vestfjörðum. 2002-06-0055
Lagt fram bréf frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dagsett 26.
júní s.l., varðandi mótun stefnu í menningarmálum á Vestfjörðum. Á 46.
Fjórðungsþingi Vestfirðinga var samþykkt að Fjórðungssambandið hefði frumkvæði
að vinnu við gerð sameiginlegrar stefnumótunar sveitarfélaga í menningarmálum á
Vestfjörðum.
Með tilvísun til þessa verður boðað til funda með sveitastjórnum á Vestfjörðum
í viku 28 það er dagana 8. - 12. júlí n.k. Fljótlega verður haft samband um
niðurröðun funda.
Bæjarráð felur menningarmálanefnd að mæta til væntanlegs fundar á vegum Fjórðungssambandsins.
4. Bréf Þjóðhagsstofnunar. - Kveðja. 2002-07-0002.
Lagt fram bréf frá Þjóðhagsstofnun dagsett í júní 2002, þar sem tilkynnt er að stofnunin verði lögð niður frá og með 1. júlí 2002. Í lok bréfs þakkar Þjóðhagsstofnun viðskiptavinum og samstarfsaðilum langt og gott samstarf.
Lagt fram til kynningar.
5. Fundargerðir Heilbrigðisstofnunarinnar, Ísafjarðarbæ. 2002-06-0042.
Lagðar fram fundargerðir Heilbrigðisstofnunarinnar, Ísafjarðarbæ, frá 33. 34. 35. 36. og 37. fundi stjórnarinnar er haldinir voru á tímabilinu maí 2001 - apríl 2002.
Lagt fram til kynningar.
6. Bréf Samb. ísl. sveitarf. - Boðun XVII landsþings Samb. ísl. sveitarf. 2002-06-0043.
Lagt fram bréf frá Samb. ísl. sveitarf. dagsett 19. júní s.l., þar sem boðað er til XVII landsþings Samb. ísl. sveitarf., sem haldið verður á Akureyri dagana 25. - 27. september 2002.
Bæjarráð tekur fram að bæjarstjórn hefur kosið fulltrúa Ísafjarðarbæjar á landsþingið og leggur áherslu á að aðrir bæjarfulltrúar hafa tækifæri til að sitja þingið sem áheyrnarfulltrúar.
7. Samb. ísl. sveitarf. - Fundargerð stjórnar frá 692. fundi. 2002-02-0044.
Lögð fram fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarf. frá 692. fundi er haldinn var að Háaleitisbraut 11 í Reykjavík þann 14. júní 2002.
Lagt fram til kynningar.
8. Vegur, áhugamannafélag. - Greinargerð um möguleika á einkafjármögnun vega. 2002-07-0003.
Lagt fram bréf frá Vegur, áhugamannafélag, Miðstræti 1, Bolungarvík, dagsett þann 14. júní s.l., ásamt greinargerð um undirbúning og athuganir á möguleikum á einka- fjármögnun vegar milli Hólmavíkur og Gilsfjarðar um Arnkötludal og Gautsdal.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð beinir því til atvinnumálanefndar Ísafjarðarbæjar að taka saman hjá atvinnurekendum í Ísafjarðarbæ hvaða áhrif það hefur á inn- og útflutning þeirra, að kostur á framhaldsfrakt hjá skipafélögum er aflagður.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:35
Þorleifur Pálsson, ritari.
Guðni G. Jóhannesson, formaður bæjarráðs.
Ragnheiður Hákonardóttir. Lárus G. Valdimarsson.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.
Magnús Reynir Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi.