Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
226.fundur
Árið 2000, mánudaginn 4. desember kl. 17:00 kom bæjarráð Ísafjarðarbæjar saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Þetta var gert:
1. Bréf Lögmanna Klapparstíg. - Fitjateigur 4, Hnífsdal.
Fram lagt bréf frá Lögmönnum Klapparstíg, Reykjavík, þar sem gerð er krafa fyrir hönd Steinunnar Finnborgar Gunnlaugsdóttur, um að Ísafjarðarbær kaupi til baka húseignina Fitjateig 4, Hnífsdal, að viðbættum þeim kostnaði er farið hefur í endurbætur ofl.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda Ofanflóðasjóði erindið ásamt umsögn umboðsmanns Alþingis um sama mál, frá 24. október s.l. og óska umsagnar.
2. Fundargerðir.
Fræðslunefnd 28/11. 117. fundur.
Fundargerðin er í fjórum liðum.
1. liður b. Bæjarráð leggur til að gjaldskrá fyrir skíðasvæðið veturinn 2001
verði samþykkt.
2. liður. Bæjarráð telur fulla þörf á að taka upp rafrænan greiðslumáta
þjónustustofnunum Ísafjarðarbæjar og vísar liðnum til fjárhagsáætlunargerðar
2001.
Aðrir liðir lagðir fram til kynningar.
Umhverfisnefnd 29/11. 122. fundur.
Fundargerðin er í sex liðum.
5. liður. Formaður bæjarráð óskar eftir að tæknideild Ísafjarðarbæjar kanni
hagkvæmni þess að settir yrðu upp stöðumælar við Hafnarstræti og Aðalstræti,
Ísafirði.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3. Bréf Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. - Málaferli.
Lagt fram bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands dagsett 24, nóvember s.l., þar sem tilkynnt er að tvennum málaferlum er höfðuð voru á félagið er lokið. Í öðru málinu hafnaði hæstiréttur kröfu stefnanda og í hinu málinu óskaði lögmaður stefnanda eftir að það yrði fellt niður.
Lagt fram til kynningar.
4. Bréf Þóris Sveinssonar, fjármálastjóra. - Námskeið fyrir stjórnendur sveitarfélaga.
Lagt fram bréf frá Þóri Sveinssyni, fjármálastjóra, dagsett 1. desember s.l., þar sem hann sækir um styrk frá Ísafjarðarbæ til að taka þátt í samnorrænu námskeiði í Danmörku á næsta ári, námskeiði fyrir stjórnendur sveitarfélaga. Þátttökugjald er Dkk. 12.260.- auk fargjalda.
Bæjarráð telur að allir starfsmenn Ísafjarðarbæjar eigi að hafa sömu möguleika til endurmenntunar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara, en vísar erindinu að öðru leiti til gerðar starfsmannastefnu.
5. Bréf Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. - Tillögur um samdrátt í framlögum til Byggðastofnunar.
Lagt fram bréf frá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða til Fjórðungssambands Vestfirðinga og sveitarfélaga á Vestfjörðum dagsett 28. nóvember s.l., er varðar tillögur um samdrátt í framlögum til Byggðastofnunar. Bréfinu fylgir afrit af bréfi til Jóns Kristjánssonar, formanns fjárlaganefndar Alþingis dagsett 28. nóvember s.l., undirritað af öllum atvinnuþróunarfélögum landsins.
Bæjarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða sé tryggð og efld.
6. Golfklúbbur Ísafjarðar. - Rekstrargrundvöllur GÍ.
Lagt fram afrit af bréfi frá formanni Golfklúbbs Ísafjarðar dagsett 28. nóvember s.l., til Héraðssambands Vestfirðinga, varðandi rekstrargrundvöll GÍ. Í bréfinu kemur fram að veruleg aukning hafi orðið á þátttakendum í golfíþróttinni á Ísafirði við nýjar og betri aðstæður. Golfklúbburinn óskar þess að hann hafi forgang til þess fjár er Ísafjarðarbær veitir til Héraðssambands Vestfirðinga á komandi fjárhagsári.
Lagt fram til kynningar.
7. Félagsmálaráðuneytið. - Reglur húsnæðisnefnda um viðbótarlán.
Lagt fram bréf frá félagsmálaráðuneyti dagsett 23. nóvember s.l., ásamt drögum að reglum húsnæðisnefnda um staðfestingu á rétti til viðbótarlána skv. VII. kafla laga um húsnæðismál nr. 44/1998 og II. kafla reglugerðar nr. 783/1998 um viðbótarlán.
Bæjarráð samþykkir að reglur húsnæðisnefndar Ísafjarðarbæjar verði lagaðar að þessum drögum.
8. Bréf Rúnars Óla Karlssonar, atvinnu- og ferðamálafulltrúa. Tjaldsvæðið í Tungudal, Skutulsfirði.
Lagt fram bréf frá Rúnari Óla Karlssyni, atvinnu- og ferðamálafulltrúa ódagsett, varðandi Tjaldsvæðið í Tungudal, Skutulsfirði. Bréfinu fylgir greinargerð um uppbyggingu tjaldsvæðisins í Tungudal, ásamt teikningum að nýrri aðstöðu og kostnaðaráætlun. Jafnframt fylgja tillögur frá Landmótun, Nýbýlavegi 6, Kópavogi, um framtíðaruppbyggingu og samanburð á svæðum, er lagt var fyrir atvinnumálanefnd 8. nóvember s.l. og samþykkt þar í megin dráttum.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2001.
9. Skóla- og fjölskylduskrifstofa. - Aukafjárveitingar.
Lagt fram bréf frá Ingibjörgu Maríu Guðmundsdóttur, forstöðumanni Skóla- og fjöldkylduskrifstofu, dagsett 1. desember s.l., þar sem óskað er eftir aukafjár- veitingum á liðinn niðurgreidd dagvistargjöld.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.
10. Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða. - Bókun bæjarráðs á 224. fundi.
Lagt fram bréf frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða dagsett 27. nóvember s.l., þar sem fjallað er um bókun bæjarráðs Ísafjarðarbæjar frá 224. fundi þess 20. nóvember s.l. Tilefni bréfsins er að leiðrétta rangfærslur og mistúlkanir sem fram koma í greinargerð fjármálastjóra Ísafjarðarbæjar og er grunnur að bókun bæjarráðs.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
11. Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga. - Fundargerðir stjórnar frá 30., 31. og 32. stjórnarfundi.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga frá 30., 31. og 32. stjórnarfundi.
Lagt fram til kynningar.
12. Launanefnd sveitarfélaga. - Fundargerð 154. fundar.
Lögð fram fundargerð Launanefndar sveitarfélaga frá 154. fundi er haldinn var þann 15. nóvember s.l., að Háaleitisbraut 11, Reykjavík.
Lagt fram til kynningar.
13. Samb. ísl. sveitarf. - Fundarg. stjórnar frá 668., 669., 670. og 671. fundi.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Samb. ísl. sveitarf. frá 668., 669., 670. og 671. stjórnarfundi. Fundirnir voru haldnir að Háaleitisbraut 11 í Reykjavík, nema 671. fundur er haldinn var að Hótel Sögu.
Lagt fram til kynningar.
14. Erindi Félagsmiðstöðvar Ísafjarðarbæjar. - Aukafjárveiting. Gjaldfærð fjárfesting.
Lagt fram bréf frá Jóni Björnssyni, forstöðumanni
Félagsmiðstöðvar Ísafjarðarbæjar, dagsett 1. desember 2000. Bréfið fjallar um
tvö erindi til bæjarráðs, þar sem óskað er eftir umfjöllun og afgreiðslu.
1. Aukafjárveiting vegna landsmóts samtaka félagsmiðstöðva, sem stefnt er á að
halda á Ísafirði í október árið 2001. Áætlaður heildarkostnaður er kr.
470.000.-
2. Gjaldfærð fjárfesting Félagsmiðstöðvar eða sparnaðareyðsla.
Óskað er eftir heimild til fjárfestinga í félagsmiðstöðvum Ísafjarðarbæjar í
heild upp á kr. 1.050.000.-
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2001.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:45
Þorleifur Pálsson, ritari.
Guðni G. Jóhannesson, formaður bæjarráðs.
Birna Lárusdóttir. Lárus G. Valdimarsson.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.