Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
198. fundur
Árið 2000, þriðjudaginn 2. maí kl. 08:00 kom bæjarráð saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Þetta var gert:
1. Fulltrúar leikskólakennara mættir til fundar við bæjarráð.
Neðangreindir fulltrúar leikskólakennara mættu til fundar við bæjarráð.
Rætt var um kjaramál leikskólakennara í Ísafjarðarbæ og lagður fram samanburður
við nokkur önnur sveitarfélög.
Mættir voru að hálfu leikskólakennara: Jensína Jensdóttir, Ína Sturludóttir,
Gígja Harðardóttir og Gunnfríður Magnúsdóttir.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að reikna út launakröfur og leggja fyrir bæjarráð.
2. Fundargerðir nefnda.
Fræðslunefnd 27/4.
Fundargerðin er í níu liðum.
Fundargerðin lögð fram til kynningar í bæjarráði.
Umhverfisnefnd 26/4.
Fundargerðin er í átta liðum.
Fundargerðin lögð fram til kynningar í bæjarráði.
3. Félagsmálanefnd Alþingis. - Þrjú frumvörp til umsagnar.
Lagt fram bréf frá félagsmálanefnd Alþingis dagsett 11. apríl s.l., þar sem
hjálagt eru send þrjú frumvörp til laga til umsagnar. Frumvörpin eru: Réttindagæsla
fatlaðra, 419. mál. Vinnumarkaðsaðgerðir, 521. mál. Greiningar- og ráðgjafastöð
ríkisins, 525. mál. Æskir nefndin þess að svar berist eigi síðar en 1. maí 2000.
Bæjarstjóri upplýsti að hann hafi fengið frest til komandi hausts til að skila
umsögnum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og félagsmálanefnd að fara yfir ofangreind frumvörp og skila greinargerðum til bæjarráðs.
4. Fræðslumiðstöð Vestfjarða. - Endurmenntunarnámskeið.
Lagt fram bréf frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða dagsett 13. apríl s.l., þar sem fram kemur að Skólastjórafélagið á Vestfjörðum hafi farið þess á leit við Fræðslumiðstöð Vestfjarða að hún sæi um að skipuleggja og halda 80 stunda endur- menntunarnámskeið fyrir félagsmenn er hæfist á yfirstandandi skólaári og stæði í rúmlega eitt ár. Námslotur verða haldnar í Borgarfirði 5. og 6. maí n.k., á Bíldudal 5. og 6. júní n.k., á Núpi í Dýrafirði 22. og 23. september n.k. og að Reykjaflöt í Hrútafirði vorið 2001.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslunefndar.
5. Slysavarnardeildin Hnífsdal. - Niðurfelling sorpeyðingargjalda.
Lagt fram bréf frá Slysavarnardeildinni Hnífsdal dagsett 11. apríl s.l., þar sem óskað er eftir niðurfellingu á sorpeyðingargjaldi af fasteign deildarinnar að Strandgötu 7, Hnífsdal.
Bæjarráð vísar erindinu til yfirstandandi vinnu varðandi endurskoðun álagninga á björgunarsveitir í Ísafjarðarbæ.
6. Skógræktarfélag Súgandafjarðar. - Ósk um aukið landrými.
Lagt fram bréf frá Skógræktarfélagi Súgandafjarðar dagsett 26. apríl s.l., þar sem félagið óskar eftir auknu landrými til skógræktar og þakkar um leið fyrir þá úthlutun á landi er staðfest hefur verið í samningi um "Landgræðsluskóga" og undirritaður var þann 19. janúar 2000. Jafnframt er í bréfinu bent á það ófremdar ástand er skapaðist á Suðureyri s.l. vor, vegna lausagöngu búfjár og hversu seint var farið í lagfæringar á girðingum.
Bæjarráð fagnar erindinu og vísar því til umfjöllunar í umhverfisnefnd og landbúnaðarnefnd.
7. Hestamannafélagið Stormur. - Reiðvegur í Dýrafirði.
Lagt fram bréf frá Hestamannafélaginu Stormi, Þingeyri, dagsett 13. apríl s.l. og varðar fyrirhugaðan reiðveg í Dýrafirði. Fyrirhugaður reiðvegur á að liggja frá Dýrafjarðarbrú að spennistöð Orkubús Vestfjarða á Skeiði innan Þingeyrar og er honum ætlað að tengjast reiðvegi fyrir Hálsinn yfir í Brekkudal.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar.
8. Félagsmálaráðuneytið. - Jöfnunarsjóður v/sérþarfa fatlaðra.
Lagt fram bréf frá félagsmálaráðuneyti dagsett 17. apríl s.l., þar sem greint er frá framlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum á yfirstandandi fjárhagsári. Framlag ársins er kr. 3.525.000.- Framlagið greiðist mánaðarlega og hefur verið greitt upp í framlagið mánaðarlega frá áramótum.
Bæjarráð vísar bréfinu til fjármálastjóra og skóla- og menningarfulltrúa.
9. Sundfélagið Vestri. - Stuðningur við Stefán Dan v/Sindragötu 5, Ísafirði.
Lagt fram bréf frá Sundfélaginu Vestra, Ísafirði, dagsett 14. apríl s.l., þar sem lýst er yfir stuðningi við þær hugmyndir Stefáns Dan Óskarssonar á að koma upp líkamsræktarstöð í og sundlaug við húsið Sindragötu 5, Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.
10. Fundur fulltrúa sveitarfélaga og Íslenskrar miðlunar. - Yfirlýsing.
Lögð fram yfirlýsing frá fundi sveitarfélaga og Íslenskrar miðlunar er haldinn var þann 15. apríl s.l. í Reykjavík. Til fundarins voru boðaðir fulltrúar eftirtaldra sveitarfélaga. Stöðvarhrepps, Fjarðarbyggðar, Vopnafjarðar, Raufarhafnar, Hríseyjar, Ólafsfjarðar, Blönduóss, Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkur, Vesturbyggðar og Grundarfjarðar. Fundurinn fjallaði um fjarvinnslustöðvar á landsbyggðinni.
Lagt fram til kynningar.
11. Sýslumaðurinn á Ísafirði. - Svefnpokagistingi í Reykjarfirði, Hornstr.
Lagt fram bréf sýslumannsins á Ísafirði dagsett 19. apríl s.l., þar sem óskað er umsagnar Ísafjarðarbæjar á umsókn Ragnars Jakobssonar ofl., um leyfi til reksturs svefnpokagistingar í Reykjarfirði á Hornströndum.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar.
12. Lacde 2000. - Alþjóðleg ráðstefna um hamfarir og neyðarviðbrögð.
Lagt fram bréf undirritað af Samb. ísl. sveitarf. og umhverfisráðuneyti dagsett 14. apríl s.l., þar sem boðað er til alþjóðlegrar ráðstefnu dagana 27.-30. ágúst n.k., um hamfarir og neyðarviðbrögð í Háskólabíó á vegum umhverfisráðuneytis og Samb. ísl. sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
13. Gamli barnaskólinn. - Minnisblað Andra Árnasonar hrl.
Lagt fram minnisblað Andra Árnasonar hrl., dagsett 26. apríl s.l., þar sem rætt er um friðun Húsafriðunarnefndar á Gamla barnaskólanum og rétt Ísafjarðarbæjar til að hafa áhrif á slík mál.
Lagt fram til kynningar.
14. Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ. - Breytingar og viðhald á Þingeyri.
Lagt fram bréf frá Heilbrigðisstofnuninni Ísafjarðarbæ dagsett 19. apríl s.l., málefni framlag til uppgjörs vegna breytinga og viðhalds á nýrri heilbrigðisstofnun á Þingeyri. Hlutur Ísafjarðarbæjar 15% er kr. 107.000.-
Lagt fram til kynningar í bæjarráði og sent fjármálastjóra.
15. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. - ÍSÍ dagurinn 27. maí 2000.
Lagt fram bréf frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands dagsett 19. apríl s.l., varðandi íþróttahátíð og ÍSÍ-daginn 27. maí n.k. Í bréfinu hvetur ÍSÍ sveitarfélög til að ganga til samráðs við íþróttahreyfinguna á hverjum stað um framkvæmd þessa dags.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslunefndar.
16. Ísland án eiturlyfja. - Ársskýrsla verkefnisstjórnar.
Lagt fram bréf frá verkefnisstjórn áætlunarinnar Ísland án eiturlyfja dagsett 10. apríl 2000, þar sem rætt er um ársskýrslu verkefnisstjórnar og vímuvarnaráætlanir. Bréfinu fylgir ársskýrsla verkefnisstjórnar.
Lagt fram til kynningar.
17. Samb. ísl. sveitarf. - Ráðstefna um einkaframkvæmdir á vegu sveitarf.
Lagt fram bréf frá Samb. ísl. sveitarf. dagsett 18. apríl s.l., þar sem boðað er til ráðstefnu í Frímúrarahúsinu við Ljósutröð í Hafnarfirði þann 17. maí n.k., um kosti, galla og önnur álitamál vegna einkaframkvæmda á vegum sveitarfélaga.
Bæjarráð telur rétt að fulltrúar Ísafjarðarbæjar mæti á ráðstefnuna.
18. Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ. - Fundarg. 19. og 20. stjórnarfundar.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ frá 19. fundi þann 16. febrúar s.l. og frá 20. fundi þann 14. apríl s.l.
Lagt fram til kynningar.
19. Samb. ísl. sveitarf. - Fundargerð 662. stjórnarfundar.
Lögð fram fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarf. frá 662. fundi er haldinn var þann 29. mars s.l., að Háaleitisbraut 11, Reykjavík.
Lagt fram til kynningar.
20. Hagstofa Íslands. - Búferlaflutningar janúar - mars 2000.
Lagt fram bréf frá Hagstofu Íslands dagsett 14. apríl s.l., um búferlaflutninga á tímabilinu janúar - mars 2000.
Lagt fram til kynningar.
21. Vinnumálastofnun. - Atvinnuástand í mars 2000.
Lagt fram bréf frá Vinnumálastofnun dagsett 17. apríl s.l., yfirlit um atvinnuástand í mars 2000.
Lagt fram til kynningar.
22. Íbúðalánasjóður. - Hækkun vaxta á lánum leiguíbúða ofl.
Lagt fram bréf frá Íbúðalánasjóði dagsett 25. apríl s.l., þar sem greint
er frá breyttum vaxtakjörum á viðbótarlánum og lánum til leiguíbúða.
Viðbótarlán:
Vextir hækka úr 4.38% í 4.54%
Lán til leiguíbúða.
Vextir til byggingar eða kaupa leiguíbúða skv. VIII. kafla laga 44/1998 verða
óbreyttir 1%
Vextir af lánum til að breyta innlausnaríbúðum í leiguíbúðir hækka úr 3.2% í
3.9%
Vextir af lánum til bygginga eða kaupa leiguhúsnæðis skv. 16. gr. laga 44/1998 hækki
úr 3.2% í 3.9%
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mótmæla hækkun vaxtakjara til leiguíbúða.
23. Sýslumaðurinn á Ísafirði. - Gistiskáli og veitingastofa að Dalbæ.
Lagt fram bréf frá sýslumanninum á Ísafirði dagsett 27. apríl s.l., þar sem óskað er umsagnar Ísafjarðarbæjar á umsókn Ingólfs Kjartanssonar, um leyfi til reksturs gistiskála og veitingarstofu að Dalbæ á Snæfjallaströnd, Ísafjarðarbæ.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar.
24. Íslandsdeild Norræna stjórnsýslusamb. - Málþing um stjórnsýslurétt.
Lögð fram tilkynning með dagskrá frá Íslandsdeild Norræna stjórnsýslu-sambandsins og félagsmálaráðuneytinu um málþing um sveitarstjórnarrétt, er haldið verður í Gerðubergi fimmtudaginn 4. maí n.k. og hefst kl. 13:00
Lagt fram til kynningar.
25. Fjölskylduráð. - Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar 15. maí n.k.
Lagt fram bréf frá Fjölskylduráði dagsett 25. apríl s.l., þar sem minnt er á alþjóðlegan dag fjölskyldunnar, sem verður þann 15. maí n.k.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslunefndar.
26. Samtökin ´78. - Beiðni um fjárstyrk.
Lagt fram bréf frá Samtökum ´78 dagsett 12. apríl s.l., þar sem samtökin fara fram á fjárstyrk frá Ísafjarðarbæ.
Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við erindinu.
27. Sjóvá-Almennar. - Umboðið í Ísafjarðarbæ.
Lagt fram bréf frá Sjóvá-Almennum dagsett 19. apríl s.l., þar sem tilkynnt er um opnun á umboði félagsins að Aðalstræti 26 við Silfurtorg á Ísafirði þann 26. apríl s.l. Fram kemur í bréfinu að skrifstofan á Ísafirði annast fjarvinnslu frá aðalskrifstofu Sjóvá-Almennra í Reykjavík.
Bæjarráð fagnar þeirri stefnu Sjóvá-Almennra að flytja störf út á landsbyggðina.
28. Tjaldsvæði á Suðureyri. - Erindi mansavina.
Lagt fram bréf frá mansavinum á Suðureyri dagsett 27. apríl s.l., þar er bent á skort á tjaldsvæði fyrir Suðureyri og bent er á opið svæði lóðarinnar Sætún 11, er hent gæti fyrir tjaldsvæði, með stækkun til norðurs og austurs.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu umhverfisnefndar.
Formaður bæjarráðs fól bæjarritara að kanna möguleika þess, að setja upp myndir af byggðarkjörnum Ísafjarðarbæjar í fundarsal bæjarstjórnar.
Bæjarráð óskar þess að ársreikningur Ísafjarðarbæjar og stofnana hans fyrir árið 1999 verði lagður fyrir næsta bæjarráðsfund.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 10:20
Þorleifur Pálsson, ritari.
Ragnheiður Hákonardóttir, formaður bæjarráðs.
Guðni G. Jóhannesson. Sigurður R. Ólafsson.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.