Bæjarráð Ísafjarðarbæjar

80. fundur

Árið 1997, mánudaginn 22. desember kl. 16.00, kom bæjarráð saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

 

Eftirfarandi málefni voru tekin til afgreiðslu:

1. Fundargerðir nefnda.

Lagðar fram eftirfarandi fundargerðir nefnda:

a. Menninganefndar frá 17. des.

23. fundur. Fundargerðin er í 5. töluliðum.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

b. Landbúnaðarnefndar frá 19. des.

11. fundur. Fundargerðin er í 4. töluliðum.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

2. Félagsmálanefnd - eignaskiptasamningur fyrir Hlíf.

Lagður fram eignaskiptasamningur fyrir Hlíf, sbr. 4. tölul. í fundargerð félagsmálanefndar frá 16. des. sl., sem vísað var til bæjarráðs á 29. fundi bæjarstjórnar 18. des. sl.

Bæjarráð samþykkir eignaskiptasamninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

3. Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða - fjárhagsáætlun 1998.

Lagt fram bréf ds. 10. des. sl. ásamt fylgiskjölum frá Antoni Helgasyni, heilbrigðisfulltrúa, varðandi fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða árið 1998.

Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 1998.

4. Félagsmálastjóri - Gæsluvöllurinn við Túngötu.

Lagt fram bréf ds. 19. des. sl. frá Jóni A. Tynes, félagmálastjóra, þar sem lagt er til að gæsluvellinum við Túngötu verði lokað frá og með næstu áramótum vegna mjög lítillar aðsóknar. Jafnframt verði kannaðar aðrar leiðir til að mæta núverandi þjónustu.

Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálanefndar.

5. Félagsmálanefnd Alþingis - sveitarstjórnarlög.

Lagt fram bréf ds. 15. des. sl. frá Kristínu Ástgeirsdóttur, formanni félagsmálanefndar Alþingis, ásamt frumvarpi til laga um sveitarstjórnarlög til umsagnar.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.

6. Hafnarstjóri - lóðin Sindragata 13.

Lagt fram bréf ds. 15. des. sl. frá Hermanni Skúlasyni, hafnarstjóra, þar sem tilkynnt er að hafnarstjórn hafi samþykkt á fundi sínum 12. des. sl. úthlutun lóðarinnar Sindragötu 13, Ísafirði, til Flutningamiðstöðvar Vestfjarða ehf og Samskipa hf.

Bæjarráð staðfestir lóðarúthlutunina.

7. Launanefnd sveitarfélaga - fundargerðir.

Lögð fram fundargerð 121. fundar Launanefndar sveitarfélaga og fundargerð 40. fundar Viðræðunefnar Samflots bæjarstarfsmanna og stjórnar Launanefndar frá 28. nóv. sl.

8. Samband ísl. sveitarfélaga - upplýsingar um fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum, ds. 12. des. sl. frá Þórði Skúlasyni, framkv.stj. Sambands ísl. sveitarfélaga, með upplýsingum um ýmiss fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

9. Fjármálastjóri - hlutabréf í Hjálmi ehf, Flateyri.

Lagt fram bréf ásamt fylgigögnum dags. 11. des. sl. frá Þóri Sveinssyni, fjármálastjóra, varðandi skipti á hlutabréfum bæjarsjóðs í Hjálmi ehf, Flateyri, fyrir hlutabréf í Básafelli hf. Í bréfinu er lagt til að skipt verði á hlutabréfunum.

Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra.

10. Björgunarsveitin Bjarg - áhaldahús á Suðureyri.

Lagt fram bréf ásamt fylgigögnum ds. 10. des. sl. frá Jóhanni Bjarnasyni, formanni Björgunarsveitarinnar Bjargar, Suðureyri, með tilboði í kaup á hluta húsnæðis áhaldahússins á Suðureyri.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar.

11. Byggingarfulltrúi - Hnífsdalsvegur 8, Ísafirði.

Lagt fram bréf ásamt fylgigögnum dags. 12. des. sl. frá Stefáni Brynjólfssyni, byggingarfulltrúa, varðandi hugsanleg kaup á fasteigninni Hnífsdalsvegur 8, Ísafirði.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við aðila málsins.

12. Strætisvagnar Ísafjarðar hf - kvöldakstur.

Lagt fram bréf dags. 12. des. sl. ásamt fylgiskjölum frá Birni Jóhannessyni, hdl, f.h. umbjóðanda síns Strætisvagna Ísafjarðar hf, varðandi framlengingu á samningi um akstur almenningsvagna og skólaakstur á Ísafirði m.t.t. kvöldferða.

Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn til loka maí 1998 og vísar kostnaði til fjárhagsáætlunargerðar 1998.

13. Kiwanisklúbburinn Básar - jólasveinasprell á leikskólum.

Lagt fram bréf dags. 15. des. sl. frá stjórnarmönnum í Kiwanisklúbbnum Básum, Ísafirði, varðandi heimsókn jólasveina til leikskóla á Ísafirði.

14. Fyrirspurn bæjarfulltrúa - staða rekstrar, fjárfestinga og lántöku.

Lagt fram bréf ásamt fylgigögnum dags. 22. des. frá Þóri Sveinssyni, fjármálastjóra, með svörum við fyrirspurn Þorsteins Jóhannessonar, bæjarfulltrúa, á 29. fundi bæjarstjórnar 18. des. sl. undir I. dagskrárlið. Í svarinu kemur fram kostnaður við rekstur og fjárfestingar á árinu eru áætlaðar 184 millj.kr. umfram fjárhagsáætlun.

Formaður bæjarráðs óskaði bæjarráðsmönnum og fjöldskyldum þeirra gleðilegra jóla.

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17.07.

Þórir Sveinsson, ritari

Jónas Ólafsson, form. bæjarráðs

Þorsteinn Jóhannesson Kristinn Hermannsson

Sigurður R. Ólafsson Guðrún Á. Stefánsdóttir