Bæjarráð Ísafjarðarbæjar

51. fundur

Árið 1997, mánudaginn 1.júní kl.16.00, kom bæjarráð saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

Eftirfarandi málefni voru tekin til afgreiðslu:

1. Fundargerðir nefnda.

Lagðar fram eftirfarandi fundargerð nefndar:

  1. Fræðslunefndar 27/05.

28.fundur. Fundargerðin er í 2.töluliðum

Bæjarráð lýsir yfir ánægju með framkomnar tillögur fræðslunefndar um framtíðaruppbyggingu grunnskólans og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  1. Bréf frá launafulltrúa v/tímakaups í vinnuskólanum.

Lagt fram bréf ds. 28.maí sl. frá launafulltrúa ásamt fimm tillögum um lengd vinnutíma og tímakaup frá forstöðumanni vinnuskólans.

Eftir ábendingar frá launafulltrúa samþykkir bæjarráð að draga til baka bókun frá síðasta fundi bæjarráðs undir 8. tölulið.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi varðandi laun og vinnutíma vinnuskólans sumar 1997;

Tillaga 4: 13 ára f. 84 tímakaup 166.91 vikufjöldi 4 klst. 3 1/2

14.ára f. 83 " 182.91 " 6 " 3 1/2

15 ára f. 82 " 203.48 " 7 " 7

16 ára f. 81 " 331.83 8 " 8

Launin greiðast skv. samningi ASV og launanefndar. Kostnaðarauka allt að 1300 þúsund krónum umfram launaáætlun fjárhagsáætlunar verði mætt með lántöku.

  1. Húsnæðisstofnun ríkisins, bréf v/Byggingarfélags Flateyrar hf.

Lagt fram bréf ds. 27. maí sl. frá Húsnæðisstofnun ríkisins um málefni Byggingarfélags Flateyrar hf, m.a. uppboðs á fasteignum þess.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir áliti bæjarlögmanns.

.

4.  Samband íslenskra sveitarfélaga:

  1. Rammasamningur við Tölvumiðlun ehf. Lagt fram til kynningar.
  2. Fjölfjöldun á vernduðum verkum.

Lagt fram til kynningar.

  1. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, fundarboð.

Lagt fram bréf frá LSR ds. 26. maí sl. þar sem boðað er til ársfundar 4.júní nk. á Hótel Loftleiðum í þingsal 1.

Lagt fram til kynningar.

  1. Fjárlaganefnd, drög að dagskrá

Lögð fram drög að dagskrá vegna ferðar fjárlaganefndar um Vestfirði 19.-22. ágúst 1997.

  1. Fjórðungssamband Vestfirðinga.

Lagt fram bréf ds. 28. maí sl. frá Halldóri Halldórssyni framkvæmdastjóra FV ásamt fylgigögnum s.s. fundargerðum, fréttapunktum o.fl.

  1. Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hf.

Lagt fram bréf ds. 27. maí sl. frá Birni Garðarssyni verkefnisstjóra v/Skjólskóga í byggð.

Bæjarráð vísar til afgreiðslu 17. fundar bæjarstjórnar þar sem veittar voru átta hundruðuþúsund krónur til verkefnisins, og hvetur til að það hefjist sem fyrst.

  1. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður- tvö lagafrumvörp til kynningar.

1176. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 75/1981, með síðari breytingum, lagt fram til kynningar.

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, með

síðari breytingum, og breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum. Frumvörpin lögð fram til kynningar. Flutningsmaður beggja frumvarpanna er Kristinn H. Gunnarsson

  1. Nanortalik. Fundargerð bæjarstjórnar.

Fundargerð nýkjörinnar bæjarstjórnar í Nanortalik lögð fram.

  1. Sóknarnefnd Mýrakirkju í Dýrafirði, styrkbeiðni.

Lagt fram bréf ds. 26/05 frá sóknarnefndarformanni Mýrasóknar Jóni Skúlasyni. Í bréfinu er farið fram á fjárstyrk vegna 100 ára afmælis Mýrakirkju 18.júlí 1997.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við formann sóknarnefndarinnar.

  1. Umhverfisráðuneytið- afrit bréfs til Arngríms Arngrímssonar.

Lagt fram afrit af bréfi ds. 19/05/97 til Arngríms Arngrímssonar, frá umhverfisráðuneytinu v/sorptunnugjalds.

13. Félagsvísindadeild Háskóla Íslands, viljayfirlýsing.

Lagt fram bréf ds. 23.maí 1997 frá Daða Einarssyni starfsmanni Atvinnumálanefndar Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands og drög að viljayfirlýsingu frá forseta deildarinnar, Jóni Torfa Jónassyni.

Lagt fram til kynningar.

  1. Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins.

Lagt fram bréf ds. 29/05/97 frá Gissuri Péturssyni forstöðumanni vinnumálaskrifstofunnar. Í bréfi GP kemur fram að ekki liggi enn fyrir hvernig fyrirkomulagi vinnumiðlunarinnar verði hagað, þrátt fyrir að nýju lögin taki gildi um næstu mánaðamót.

15. Bréf frá Sævari Gunnarssyni, Þingeyri v/ akstur

Lagt fram bréf ds. 1.júní sl. frá Sævari Gunnarssyni vegna aksturs á milli Þingeyrar og Ísafjarðarflugvallar í tengslum við áætlunarflug. Bréfritari leggur fram beiðni um greiðslu til að styrkja samgöngur innan sveitarfélagsins.

Bæjarráð bendir bréfritara á ekki sé hægt að verða við erindinu. Hugmyndir bréfritara yrðu að leysast í tengslum við skipulagningu almenningssamgangna í Ísafjarðarbæ.

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:20.

Þórunn Gestsdóttir ritari

Sigurður R. Ólafsson, formaður bæjarráðs     Þorsteinn Jóhannesson

Smári Haraldsson        Magnea Guðmundsdóttir

Kristinn Hermannsson        Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri