Barnaverndarnefnd

59. fundur

Árið 2005, miðvikudaginn 24. ágúst kl. 9.30, hélt barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum fund á Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu.
Mætt voru: Laufey Jónsdóttir, formaður, Björn Jóhannesson, Sigríður Bragadóttir, Helga Sigurjónsdóttir og Kristrún Hermannsdóttir. Auk þess sátu fundinn Skúli S. Ólafsson, Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Erna Stefánsdóttir og Anna V. Einarsdóttir starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Fundarritari: Anna V. Einarsdóttir.

1. Handbók barnaverndarmála.

Ingibjörg María Guðmundsdóttir greindi frá stöðu mála í vinnslu handbókar. Rætt um útlit, útgáfu, kynningu og notkun bókarinnar. Ákveðið að sækja um styrk til Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands vegna útgáfu bókarinnar.

2. Framkvæmdaráætlun barnaverndarmála.

Farið yfir hver staðan er í vinnslu verkefna sem barnaverndarnefndin setti sér sem markmið að vinna í framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndarmála.

3. Umboð barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum til starfsmanna nefndarinnar.

Rætt um hvaða áhrif umboð barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum til starfsmanna nefndarinnar hefur á störf nefndarinnar og hvort einhver breyting verður á starfsskipulagi hennarog verkefnum. Ákveðið að óska eftir fundi með formönnum annarra nefnda sem koma að málefnum barna til að ræða forvarnir í víðu samhengi.

Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:15.

 

Laufey Jónsdóttir, formaður.

Björn Jóhannesson. Sigríður Bragadóttir.

Kristrún Hermannsdóttir. Helga Sigurjónsdóttir.

Skúli S. Ólafsson. Ingibjörg María Guðmundsdóttir

Anna Valgerður Einarsdóttir Erna Stefánsdóttir