Atvinnumálanefnd
38. fundur
Árið 2003, föstudaginn 12. desember kl. 12:00 hélt atvinnumálanefnd
Ísafjarðarbæjar fund á Hótel Ísafirði.
Mættir: Elías Guðmundsson, formaður, Kristján G. Jóhannsson , Gísli H.
Halldórsson, Björn Davíðsson, Magnús Reynir Guðmundsson og Rúnar Óli Karlsson,
ritari.
Þetta var gert:
1. Stofnun eignarhaldsfélags.
Ýmsar hugmyndir ræddar um stofnun eignarhaldsfélags í Ísafjarðarbæ og hvaða leiðir væru mögulegar í því sambandi.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 13:10.
Elías Guðmundsson, formaður. Kristján G. Jóhannsson.
Björn Davíðsson. Gísli H. Halldórsson.
Magnús Reynir Guðmundsson. Rúnar Óli Karlsson.