Atvinnumálanefnd

30. fundur

Árið 2003, þriðjudaginn 27. maí kl. 17:00 hélt atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar fund á skrifstofu Ísafjarðarbæjar.
Mættir: Elías Guðmundsson, formaður, Gísli H. Halldórsson, Kristján G. Jóhannsson, Björn Davíðsson, Magnús S. Jónsson og Rúnar Óli Karlsson.
Magnús Reynir Guðmundsson boðaði forföll og mætti Magnús S. Jónsson í hans stað.
Fundargerð ritaði Rúnar Óli Karlsson.

Þetta var gert:

1. Umsókn í Northern Periphery verkefnisáætlunina.

Rúnar Óli kynnti þátttöku Ísafjarðarbæjar í verkefninu USEVENUE sem er samstarfsverkefni Finnlands, Svíþjóðar, Íslands og Skotlands í tengslum við menningu og ferðaþjónustu.

2. Stefnumótun í ferðaþjónustu fyrir norðanverða Vestfirði. 2003-05-0032

Rúnari Óla falið að sækja um fjármagn hjá opinberum aðilum.

3. Fundur með Jóhanni Jónassyni hjá 3X-Stál.

Samantekt lögð fram.

4. Fundargerð síðasta fundar.

Fundargerð frá 19. maí lögð fram og samþykkt

5. Könnun sumarstarfa í Ísafjarðarbæ. 2003-05-0030.

Lögð fram skýrsla starfshóps um könnun sumarstarfa í Ísafjarðarbæ fyrir ungt fólk. Rúnari Óla falið að kynna framgang verkefnisins á næsta fundi.

6. Skipulag nefndarinnar og næstu verkefni.

Elías kynnti hugmyndirnar sínar að næstu verkefnum nefndarinnar, boðun funda

Fleira ekki gert, fundarbókun upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 17:00

Elías Guðmundsson, formaður. Björn Davíðsson.

Gísli H. Halldórsson. Rúnar Óli Karlsson.

Kristján G. Jóhannsson Magnús S. Jónsson.