Atvinnumálanefnd

8. fundur

Árið 2001, þriðjudaginn 26. júní kl. 17:00 hélt atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar fund á skrifstofu Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Mættir voru undirritaðir.

Þetta var gert:

1. Ráðstefna í atvinnumálum í september 2001.

Til fundar við atvinnumálanefnd mætti Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða hf., til viðræðna um væntanlega ráðstefnu um atvinnumál er atvinnumálanefnd hefur tekið ákvörðun um að halda í september n.k.
Á fundinum voru lögð fram frumdrög að dagskrá er skiptist í þrjá megin þætti, sem eru: Menntun. - Nýsköpun. - Sérstaða Ísafjarðarbæjar.

Atvinnumálanefnd felur Kristjáni Haraldssyni, formanni nefndarinnar og Rúnari Óla Karlssyni, atvinnu- og ferðamálafulltrúa, að velja frummælendur á ráðstefnuna og skipuleggja frekari undirbúning.

2. Styrktarsjóður Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands.

Lagt fram bréf frá Ísafjarðarbæ dagsett 19. júní s.l., þar sem bæjarráð Ísafjarðarbæjar óskar eftir tillögum nefnda bæjarins um umsóknir í Styrktarsjóð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands.
Lagt fram til kynningar nú, tekið fyrir aftur á næsta fundi nefndarinnar.

Fleira ekki gert fundarbókun upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 17:40

Þorleifur Pálsson, ritari.

Kristján Haraldsson, formaður. Kristján G. Jóhannsson.

Rúnar Óli Karlsson.