Atvinnumálanefnd

1. fundur

Árið 2000, föstudaginn 20. október kl. 17:00 hélt atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar fund í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Mættir voru undirritaðir. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, kom inn á fundinn og gerði grein fyrir hugmyndum um störf nefndarinnar og drögum að erindisbréfi.

Þetta er fyrsti fundur ný kjörinnar atvinnumálanefndar samkvæmt bæjarmálasamþykkt Ísafjarðarbæjar er samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 21. september 2000.

Nefndina skipa:

Aðalmenn.

Kristján Haraldsson, formaður.
Kristján G. Jóhannsson, varaformaður.
Henrý J. Bæringsson.

Varamenn.

Óðinn Gestsson.
Bjarki Bjarnason.
Halldór Antonsson.

Nefndin samþykkir að starfsmaður nemdarinnar annist fundarritun.

Þetta var gert:

1. Erindisbréf atvinnumálanefndar.

Lögð fram drög að erindisbréfi atvinnumálanefndar ásamt kafla úr nýrri bæjarmálasamþykktar Ísafjarðarbæjar er varðar nefndina.
Drög að erindisbréfi eru lögð fram til kynningar á þessum fundi og verða tekin fyrir að nýju á næsta fundi nefndarinnar til afgreiðslu.

Bæjarstjóri vék af fundi eftir 1. lið dagskrár.

2. Drög að fjárhagsáætlun atvinnumálanefndar fyrir árið 2001.

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun atvinnumálanefndar fyrir árið 2001. Nefndin felur starfsmönnum sínum að ganga frá fyrstu tillögu að fjárhagsáætlun 2001. Endurskoða þarf og samræma bókhaldslykla atvinnu- og ferðamála eins og kostur er.

3. Fundartími atvinnumálanefndar.

Ákveðið var að fastur fundartími atvinnumálanefndar verði 2. miðvikudagur í mánuði og hefjist fundir kl. 17:00

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:35
Þorleifur Pálsson, ritari.

Kristján Haraldsson, formaður. Kristján G. Jóhannsson.

Halldór Antonsson. Rúnar Óli Karlsson.