Starfshópur um framtíðarlausn í húsnæðismálum

Grunnskólans á Ísafirði

7. fundur

7. fundur starfshóps um framtíðarlausn í húsnæðismálum Grunnskólans á Ísafirði, haldinn á bæjarskrifstofum Ísafjarðarbæjar, miðvikudaginn 24. janúar 2001, kl. 08:30.
Halldór Halldórsson ritaði fundargerð.

1. Greinargerð starfshópsins til bæjarráðs.

Unnið að greinargerð starfshópsins til bæjarráðs. Drög að greinargerðinni hafa verið í vinnslu undanfarið og hafa fulltrúar í starfshópnum sent þau á milli í tölvupósti.
Greinargerðin fullunninn ásamt fylgiskjölum. Þeim komið í endanlegt form til að leggja fyrir bæjarráð Ísafjarðarbæjar.

2. Starfslok.

Með skil á greinargerðinnni hefur starfshópurinn lokið störfum og þakkar fyrir gott samstarf.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:50

Halldór Halldórsson. Elías Oddsson.

Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson.