Almannavarnanefnd
Miðvikudaginn 20. okt. 1999 kl. 15:15 kom almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar saman til fundar í stjórnstöð almannavarnanefndar við Fjarðarstræti, auk þeirra sem tóku þátt í stjórnun almannavarnaræfingar þann 18. sept.sl. og fulltrúar Almannavarna ríkisins
Árni Birgisson og Sólveig Þorvaldsdóttir AVRIK gerðu grein fyrir æfingunni þann 18. sept s.l. Þau lögðu fram minnispunkta sem þau höfðu tekið saman úr sínum gögnum og innsendum skýrslum. Bætt inn upplýsingum, athugasemdum og spurningum frá fundarmönnum.
Ármann Jóhannesson vék af fundi kl 16:15
Sólveig Þorvaldsdóttir Árni Birgisson
Sigríður Hrönn Elíasdóttir Hilmar Pálsson
Oddur Árnason Gunnar Steinþórsson
Hermann Hermannsson
Lögð fram tillaga að rýmingarsvæði fyrir Flateyri, gerð 5. mars 1999. Samkvæmt tillögunni er rýmingarsvæði III ofan Tjarnargötu, vestan Hafnarstrætis og línu, sem er dregin í framhaldi af Hafnarstræti rétt vestan kirkjugarðs. Svæði II er austan þessarar línu og nær út í sjó .
Almannavarnarnefnd samþykkti tillöguna.
Fundi slitið kl. 16:45
Gísli Gunnlaugsson Kristján Finnbogason
Halldór Halldórsson Friðný Jóhannesdóttir
Ólafur Helgi Kjartansson