Almannavarnanefnd

Laugardaginn 12. júní 1999 kl. 21:00 kom almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar saman til fundar á lögreglustöðinni á Ísafirði.

Til fundarins mættu undirritaðir.

Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu er gert ráð fyrir ágætu veðri í nótt og á morgun.

Ekki er gert ráð fyrir rýmingu í nótt. Færa lokun á Urðarvegi að Urðarvegsbrekku, annað óbreytt. Samþykkt að láta einn mann á vakt í nótt og mannskap á tæki í viðbragðsstöðu.

Samþykkt að hafa sólahrings vakt fram á mánudag, miðað við óbreytt ástand. Talið rétt að vettvangsstjóri taki ákvörðun um hvenær tæki fari af svæðinu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21:30

Ármann Jóhannesson, fundarritari. Halldór Halldórsson, formaður.

Friðný Jóhannesdóttir. Bjarki Rúnar Skarphéðinsson.

Oddur Pétursson. Hlynur Snorrason.

Ólafur Reynir Guðmundsson. Gísli Gunnlaugsson.

Þorbjörn Sveinsson.