Almannavarnanefnd

58. fundur

Þriðjudaginn 29. nóvember 2005 kl. 16:00 kom almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar saman til 58. fundar í stjórnstöð við Fjarðarstæti, Ísafirði.

Þetta var gert.

1. Sýslumaður kynnti átak björgunarsveita á svæði 7, um átak sem gert hefur verið í uppsetningu endurvarpa fyrir UHF.

Almannavarnanefnd fagnar átakinu sem að nýtist í þágu almannavarna á svæðinu.

2. Sýslumaður kynnti almannavarnaæfingu sem fram fór á Seyðisfirði fyrir rúmri viku.

3. Undirbúningur vegan æfingar í maí 2006, þar sem æfð verða almannavarnaviðbrögð vegan farþegaskips út af Vestfjörðum.
Um er að ræða samstarfsverkefni almannavarna, Siglingastofnunar, Landhelgisgæslu og erlendra viðbragsaðila.

4. Skrifborðsæfing, æfð voru viðbrögð við snjóflóði í Hnífsdal.

Fleira ekki gert, fundagerð upplesin og undirrituð. Fundi slitið kl. 17:06

Halldór Halldórsson, formaður. Jóhann B. Helgason.

Sigríður B. Guðjónsdóttir, sýslumaður. Snorri Hermannsson.

Júlíus Ólafsson. Þorbjörn J. Sveinsson.

Gísli Gunnlaugsson. Þorsteinn Jóhannesson.

Önundur Jónsson.