Linköping
Vinabær Ísafjarðarbæjar í Svíþjóð er Linköping. Linköping er meira en 700 ára gamall bær, sá fimmti stærsti í Svíþjóð, en íbúar þar eru tæplega 140.000 talsins. Bærinn er staðsettur á sléttlendi suðaustur Svíþjóðar og er umvafinn landbúnaðarsvæðum, enda er framleiðsla á matvöru mikilvægur þáttur á þessum slóðum. Linköping er líka miðstöð þekkingar, þar er framsækinn háskóli og mikill hátækniiðnaður.
Vefsíða Linköping
Linköpings kommun
Box 3922
581 81 Linköping
Sverige
