Menningarlíf í Ísafjarðarbæ
Rík menning og iðandi mannlíf eru mikilvægur hluti af samfélaginu. Í Ísafjarðarbæ er enginn skortur á þessum þáttum. Tónlist, myndlist, sögu, íþróttir og aðra afþreyingu má finna um allt sveitarfélagið.
Segja má að menningarhúsin þrjú séu orðin einskonar miðpunktar menningar á svæðinu. Í Safnahúsinu á Eyrartúni má finna allt frá bókasafni til listasafns. Listin er svo ríkjandi í hinum tveimur, þ.e. tónleikasalnum Hömrum við Austurveg og Menningarmiðstöðinni Edinborg.
Trúarlíf á svæðinu er fjölbreytt, með yfir 20 staði sem sérstaklega eru helgaðir og fráteknir fyrir trúariðkun. Stærstar eru kristnu trúardeildirnar, Lúterska þjóðkirkjan, Kaþólska kirkjan og Hvítasunnukirkjan.
Vinabæjarsamstarf hefur lengi verið í hávegum haft, enda mikilvægt að hafa einhvern til að læra af og miðla til eigin reynslu. Vinabæir Ísafjarðarbæjar Hróarskelda í Danmörku, Tönsberg í Noregi, Runavík í Færeyjum, Joensuu í Finnlandi, Linköping í Svíþjóð og Nanortalik á Grænlandi.
Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar fer með menningarmál sveitarfélagsins. Í nefndinni eru þrír fulltrúar og þrír til vara. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja samkvæmt þjóðminjalögum. Nefndin fer jafnframt með vinabæjarsamskipti, hátíðahöld og málefni félagsheimila. Auk verkefna sem menningarmálanefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
Starfsmaður Menningarmálanefndar er Þorleifur Pálsson, bæjarritari thorleifur@isafjordur.is
Ísafjarðarbíó
Í Ísafjarðarbæ er starfrækt eitt kvikmyndahús sem er með reglulegar sýningar á vinsælum myndum á hverjum tíma. Sýningarsalurinn er búinn þægilegum sætum og góðum sýningar- og hljóðbúnaði. Miðasalan opnar að jafnaði einni klukkustund fyrir sýningar.
Ísafjarðarbíó er í Alþýðuhúsinu, Norðurvegi 1.
Sími : 456 3202.
Útgefið efni
Umsóknir og eyðublöð
Gagnlegar flýtileiðir
Bæjarfulltrúar
Fundargerðir
- Umhverfisnefnd - 10.3.2010
- Bæjarráð - 8.3.2010
- Félagsmálanefnd - 5.3.2010
- Bæjarstjórn - 4.3.2010
- Bæjarráð - 1.3.2010
- Atvinnumálanefnd - 26.2.2010
