Hlutfall kynja í nefndum Ísafjarðarbæjar
Gerð hefur verið úttekt á kynjahlutföllum í nefndum Ísafjarðarbæjar. Í fastanefndum bæjarins er hlutfall kvenna 40%. Eru þær í minnihluta í 6 af 8 nefndum og gegnir kona formennsku í tveimur þessara nefnda eins og sakir standa. Konur eru þó meirihluti kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn, eða 5 af 9. Fastanefndir bæjarins eru; bæjarstjórn, bæjarráð, atvinnumálanefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd og umhverfisnefnd.
Í verkefnabundnum nefndum bæjarins, þ.e.a.s. nefnd um sorpmál og nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis, eru konur þriðjungur nefndarmanna eða 2 af 6. Karl gegnir formennsku í annarri nefndinni en kona í hinni.
Verulega hallar á konur í sameiginlegum nefndum sveitarfélaganna á norðanverðum Vestfjörðum. Þar eru einungis 4 konur en 13 karlar (24%) og gegna karlar formennsku í tveimur nefndum en kona í einni. Sameiginlegar nefndir eru; barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum, búfjáreftirlitsnefnd Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkurkaupstaðar og Súðavíkurhrepps og sameinuð almannavarnarnefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps. Þær tvær síðastnefndu eru alfarið skipaðar körlum, en þess ber þó að geta að seta í almannavarnanefnd ræðst í flestum tilfellum af tilteknum embættum en ekki hefðbundnum skipunum.
