06. febrúar 2010 : Viðburðardagatal

Á niðurleið

Tónlistarfélag Ísafjarðar heldur 2. áskriftartónleika sína á starfsárinu laugardaginn 6.febrúar nk. kl. 15:00. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Á niðurleið! “ en þar koma fram þau Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari. Þau ætla að feta sig niður tónstigann í leit að djúpum bassanótum og merkingu þeirr og á dagskránni eru aríur, ljóð og sönglög sem stefna niður á við og rista djúpt.  Hér eru á ferðinni tónleikar fullir af alvöru og húmor!

 

Áskriftarkort gilda – miðaverð við innganginn kr. 1.500. Ókeypis fyrir tónlistarnema 20 ára og yngri.



Ábendingar um viðburði má senda á postur@isafjordur.is