Þorrablót Hnífsdælinga
Hið árlega þorrablót Hnífsdælinga verður haldið laugardaginn 6. febrúar næstkomandi í félagsheimilinu í Hnífsdal. Þetta er í 62. sinn sem Hnífsdælingar blóta Þorra og að venju taka gestir með sér sinn þorramat í trogum. Hefð er fyrir því að þorrablótsnefnd taki helstu viðburði og nokkra einstaklinga fyrir og er það talinn mikill heiður og merki um að fólk hafi látið að sér kveða ef það er tekið fyrir í skemmtiatriðum á þorrablóti. Að skemmtun og borðhaldi loknu og fram eftir nóttu leika Gummi Hjalta og Stuðboltarnir fyrir dansi.
Þorrablótið er liður í fjáröflun Kvenfélagsins Hvatar en sem kunnugt er gefur kvenfélagið árlega til góðra málefna af miklum rausnarskap. Miðaverði hefur verið stillt í hóf og kostar miðinn einungis 2800 kr. Nefndarkonur vonast til að sjá sem flesta en allir eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir. Miðapantanir eru í síma 899-3628 og 893-3286 og opnar húsið klukkan 19:30.
Ábendingar um viðburði má senda á postur@isafjordur.is
Viðburðardagatal
febrúar
2010
Útgefið efni
Umsóknir og eyðublöð
Gagnlegar flýtileiðir
Bæjarfulltrúar
Fundargerðir
- Bæjarstjórn - 2.9.2010
- Starfshópur um yfirfærslu á málefnum fatlaðra - 31.8.2010
- Bæjarráð - 30.8.2010
- Atvinnumálanefnd - 26.8.2010
- Hafnarstjórn - 25.8.2010
- Nefnd um sorphirðu - 25.8.2010
