Sundlaugar í Ísafjarðarbæ
Í Ísafjarðarbæ eru fjórar almenningssundlaugar.

Sundlaugin á Suðureyri (að ofan) er á Suðureyrartúni
Sími: 450 8490
Póstfang: sundsud@isafjordur.is
Eina útilaugin í bæjarfélaginu er á Suðureyri. Þar eru líka tveir heitir pottar ásamt vaðlaug og gufubaði. Í bað- og búningsklefum eru sólbekkir.
Sundhöllin á Ísafirði er við Austurveg 9
Sími: 450 8480
Á Ísafirði er elsta sundlaug bæjarfélagsins, en hún var tekin í notkun árið 1945. Þetta er innisundlaug með heitum potti og sánabaði ásamt bað- og búningsklefum.
Sundlaugin á Flateyri (að ofan) er við Tjarnargötu
Sími: 450 8460
Innisundlaug með heitum potti og gufubaði. Bað- og búningsklefar ásamt sólbekkjum og þreksal.
Sundlaugin á Þingeyri er við Þingeyrarodda
Sími: 450 8470
Innisundlaug, heitur pottur, gufubað og bað- og búningsklefar. Laugin er sú nýjasta og glæsilegasta af sundlaugum Ísafjarðarbæjar.
Hvað kostar í sund?
Frítt í sund fyrir börn að 16 ára aldri.
Frítt fyrir eldri borgara
Stakur miði 440 kr. fyrir fullorðna.
Kort fást einnig keypt.
Opnunartímar sundlauga veturinn 2009 - 2010
Sundhöllin á Ísafirði
Mánud. - föstud. kl. 07.00 - 08.00 og 19.00 - 21.00
Laugard. - sunnud. kl. 10.00 - 15.00
Sundlaugin á Flateyri
Mánud., þriðjud., fimmtud. kl. 16.00 - 19.00
Laugard. kl. 13.15 - 18.00
Miðvikud., föstud., sunnud.: Lokað
Sundlaugin á Þingeyri
Mánud., þriðjud., miðvikud. kl. 08.15 - 11.30 og 16.00-19.30
Fimmtud. kl. 08.15 - 11.30 og 16.00 - 21.00
Sunnud. kl. 11.00 - 17.00
Föstud., laugard.: Lokað
Sundlaugin á Suðureyri
Þriðjud., miðvikud., fimmtud. kl. 16.00 - 19.00
Sunnud. kl. 14.00 - 18.00
Mánud., föstud., laugard.: Lokað
Útgefið efni
Umsóknir og eyðublöð
Gagnlegar flýtileiðir
Bæjarfulltrúar
Fundargerðir
- Umhverfisnefnd - 10.3.2010
- Bæjarráð - 8.3.2010
- Félagsmálanefnd - 5.3.2010
- Bæjarstjórn - 4.3.2010
- Bæjarráð - 1.3.2010
- Atvinnumálanefnd - 26.2.2010
