Tilkynning frá yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar
Þjóðaratkvæðagreiðsla um lög nr. 1/2010 (Icesave-lög), sem forseti Íslands synjaði staðfestingar, fer fram laugardaginn 6. mars. Kjörfundir í Ísafjarðarbæ verða sem hér segir:
1.-3. kjördeildir (Ísafjörður, Hnífsdalur og dreifbýli) í íþróttahúsinu á Torfnesi.
4. kjördeild (Suðureyri og dreifbýli) í félagsheimilinu á Suðureyri.
5. kjördeild (Flateyri og dreifbýli) í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri.
6. kjördeild (Þingeyri og dreifbýli) í félagsheimilinu á Þingeyri.
Kjörfundur hefst klukkan 10 og lýkur klukkan 22.
Munum eftir persónuskilríkjunum.
Útgefið efni
Umsóknir og eyðublöð
Gagnlegar flýtileiðir
Bæjarfulltrúar
Fundargerðir
- Starfshópur um yfirfærslu á málefnum fatlaðra - 31.8.2010
- Bæjarráð - 30.8.2010
- Atvinnumálanefnd - 26.8.2010
- Hafnarstjórn - 25.8.2010
- Nefnd um sorphirðu - 25.8.2010
- Fræðslunefnd - 24.8.2010
