Barnabrekkan gæti opnað um helgina
Þrátt fyrir snjóleysi undanfarinna vikna hafa starfsmenn Skíðasvæðisins á Ísafirði unnið hörðum höndum að því að bæta aðstöðuna. Nýtist þar vel snjóbyssa sem kom á svæðið í haust. Svo gæti jafnvel farið að þrátt fyrir nær algert snjóleysi verði hægt að opna barnabrekku svæðisins um helgina.
Engu er þó lofað að svo komnu máli, en áhugasamir eru beðnir um að fylgjast vel með um helgina með því að fara á heimasíðu skíðasvæðisins, isafjordur.is/ski, eða hringja í símsvara svæðisins, 878 1011.
Útgefið efni
Umsóknir og eyðublöð
Gagnlegar flýtileiðir
Bæjarfulltrúar
Fundargerðir
- Bæjarstjórn - 2.9.2010
- Starfshópur um yfirfærslu á málefnum fatlaðra - 31.8.2010
- Bæjarráð - 30.8.2010
- Atvinnumálanefnd - 26.8.2010
- Hafnarstjórn - 25.8.2010
- Nefnd um sorphirðu - 25.8.2010
