Kynningarfundur um styrki til atvinnumála kvenna

Nú hafa styrkir til atvinnumála kvenna, er félags- og tryggingamálaráðherra úthlutar, verið auglýstir lausir til umsóknar. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar og er frestur til að sækja um styrk til 7.febrúar.

 

Að þessu sinni gefst þeim konum, sem eru atvinnulausar og hafa sótt um þróun eigin viðskiptahugmyndar eða hafa hug á því, tækifæri til að sækja um styrk.

 

Kynningarfundur um styrkmöguleikana og þróun eigin viðskiptahugmyndar verður haldinn hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði, þann 29.janúar kl.09.00-11.00.

Fundurinn er haldinn í fjarfundabúnaði á fjórum stöðum á landinu.

 

Dagskrá:

Kynning á styrkjum til atvinnumála kvenna – Ásdís Guðmundsdóttir

Kynning á þróun eigin viðskiptahugmyndar – Vinnumálastofnun Norðurlands eystra

Örnámskeið í gerð umsókna – Ásdís Guðmundsdóttir

Kynning á þjónustu Impru – Arna Lára Jónsdóttir

Kynning á þjónustu Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða - Ásgerður Þorleifsdóttir

 

Allar konur velkomnar!