Leikskólar í Ísafjarðarbæ
Ísafjarðarbær rekur 6 leikskóla fyrir börn á aldrinum 1-6 ára. Tveir stærstu leikskólarnir eru á Ísafirði. Það eru Sólborg sem er með fjórar deildir og Eyrarskjól með þrjár deildir. Báðir skólar aldursskipta börnum á deildir.
Einn leikskóli er svo í hverjum byggðarkjarna; Bakkaskjól í Hnífsdal, Tjarnarbær á Suðureyri, Grænigarður á Flateyri og Laufás á Þingeyri. Fjölbreytni er í starfi leikskólanna og fer áhersla á hverjum stað eftir mannauð og samfélagslegum áherslum.
Leikskólar Ísafjarðarbæjar starfa samkvæmt aðalnámskrá leikskóla en hver þeirra er með sínar áherslur á ákveðna þætti og í vetrarstarfinu er lögð áhersla á ákveðin þemu. Einnig er boðið uppá ýmsar ferðir, skemmtanir og menningarviðburði í öllum leikskólum bæjarfélagsins.
Leikskólar eru opnir frá kl. 7:30 eða 7:45 og til 15:15, 16:15 eða 17:15 eftir þörf á hverjum stað. Að lágmarki þarf fjögur börn til að halda skóla/deild opinni. Laufás á Þingeyri er eini einsetni leikskólinn í sveitarfélaginu. Allir leikskólar bjóða upp á morgunmat, heitan mat í hádeginu og síðdegishressingu.
Hver leikskóli er með eigin vefsíðu.
Leikskólastefna Ísafjarðarbæjar
Leikskóladvöl
Hér eru upplýsingar um hvernig sótt er um leikskólapláss, hvaða reglur gilda um úthlutun og uppsögn á lekskólaplássi og flutning milli leikskóla innan Ísafjarðarbæjar.
Öll eyðublöð er hægt að fá í þjónustuborði Ísafjarðarbæjar, á öllum leikskólum og þau má líka sækja í pdf.
Leikskóla- og sérkennslufulltrúi
Leikskóla- og sérkennslufulltrúi er Sigurlína Jónasdóttir. - Sími: 450 8000 - Netfang: leikskolafulltrui@isafjordur.is
Útgefið efni
Umsóknir og eyðublöð
Gagnlegar flýtileiðir
Bæjarfulltrúar
Fundargerðir
- Umhverfisnefnd - 10.3.2010
- Bæjarráð - 8.3.2010
- Félagsmálanefnd - 5.3.2010
- Bæjarstjórn - 4.3.2010
- Bæjarráð - 1.3.2010
- Atvinnumálanefnd - 26.2.2010
