Skólaþjónusta Ísafjarðarbæjar
Hlutverk skólaþjónustunnar er rekstrarlegt og faglegt eftirlit með starfsemi skóla Ísafjarðarbæjar. Í því felst m.a. að veita grunnskólum og leikskólum sérfræðiaðstoð og ráðgjöf. Skólaþjónustan veitir eftirfarandi sérfræðiþjónustu: Einstaklingsþjónusta - greining og úrræði. T.d. sálfræðileg og kennslufræðileg greining námsvandamála og greining samskipta og hegðunarvandamála.
