Skóladeild Skóla- og fjölskylduskrifstofu

Hlutverk skóladeildar er rekstrarlegt og faglegt eftirlit með starfsemi skóla Ísafjarðarbæjar. Í því felst m.a. að veita grunnskólum og leikskólum sérfræðiaðstoð og ráðgjöf. Skóladeild veitir eftirfarandi sérfræðiþjónustu: Einstaklingsþjónusta - greining og úrræði. T.d. sálfræðileg og kennslufræðileg greining námsvandamála og greining samskipta og hegðunarvandamála. Sérkennsluráðgjöf og aðstoð við áætlanagerð. Handleiðsla og ráðgjöf til starfsfólks skóla og foreldra. Ráðgjöf við skóla annast auk yfirmanns Kristín Ósk Jónasdóttir


   

Ráðgjöf til foreldra og nemenda

Foreldrar geta leitað til ráðgjafa skóladeildar með vandamál tengd skólagöngu barns sem upp koma, hvort sem um er að ræða námsárangur, hegðun, eða líðan í skólanum. Ýmis vandamál má þó leysa innan skólans áður en leitað er aðstoðar sérfræðings. Foreldrum er bent á að grunnskólar eiga að hafa til


 

Stjórnskipulag skólamála

Fræðslunefnd er skipuð 5 fulltrúum sem eru pólitískt kjörnir af bæjarstjórn. Fulltrúar kennara, skólastjóra og foreldra í Ísafjarðarbæ eiga rétt til setu á fundum fræðslunefndar með málfrelsi og tillögurétt. Hlutverk nefndarinnar er að marka stefnu sveitarfélagsins í skólamálum, fylgjast með og stuðla að því að skólum sé tryggður aðgangur að