Flýtileiðir

Grunnskólar í Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarbær rekur fjóra einsetna grunnskóla fyrir 1.-10. bekk. Sá fjölmennasti er á Ísafirði, en hinir minni á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Samtals eru grunnskólanemendur um 585.

Við Grunnskólann á Ísafirði er rekin heilsdagsvistun fyrir 1.-3. bekk til kl. 16:30 virka daga og þar er rekið mötuneyti skv. útboði sem SKG veitingar sjá um. Grunnskólinn á  Þingeyri starfrækir sitt mötuneyti nálægt skólanum, en Grunnskólinn á Flateyri kaupir mat frá leikskólanum fyrir þá nemendur sem óska þess. Á heimasíðum skólana er að finna frekari upplýsingar.

 

Sérdeild grunnskóla sveitarfélagsins er rekin í Grunnskólanum á Ísafirði og er nemendum með miklar sérþarfir beint þangað. Almenna reglan er þó að nemendur sæki skóla í sínu hverfi en hafa möguleika á að sækja aðra samkvæmt stefnu fræðslunefndar. Skóla- og tómstundasvið afgreiðir slíkar umsóknir.

 

Nemendarverndarráð starfa við alla skólana og eiga þar sæti fulltrúar sérfræðiþjónustu, skólastjóri, skólahjúkrunarfræðingur, sérkennari og námsráðgjafi. Hlutverk nemendaverndarráða er að samræma skipulag og þjónustu við nemendur sem þurfa einhvers konar sérstaka aðstoð af einhverjum orsökum. 

 

Ísafjarðarbær hefur einn námsráðgjafa sem starfar í öllum skólum. Þrjá daga vikunnar er hann á Ísafirði en kemur í hina þrjá skólana einu sinni í viku. Allir skólar gefa út skólanámskrá að hausti með helstu áherslum skólans, stefnu og markmiðum. Í þeim ritum er að finna reglur hvers skóla og helstu boðleiðir. 

 

Grunnskólastefna Ísafjarðarbæjar

Mötuneyti í grunnskólum

Hádegismatur er í boði í grunnskólum Ísafjarðarbæjar


Nánar
Heilsdagsskóli – Dægradvöl

Dægradvöl er skóladagvist sem starfrækt er í tengslum við Grunnskólann á Ísafirði.


Nánar
Skólaakstur

Boðið er upp á skólaakstur fyrir grunnskólabörn.


Nánar
Vefumsjón