Flýtileiðir

Dagforeldrar

Foreldrar sem óska vistunar gera það hjá viðeigandi dagforeldri.

 

Gjald og niðurgreiðslur hjá dagforeldrum.

Upphæð niðurgreiðslna kemur fram í gjaldskrá skóla- og tómstundasviðs.

 

 

Niðurgreiðslur eru háðar eftirfarandi skilyrðum:

  • Að dagforeldri hafi tilskilin leyfi félagsmálanefndar til daggæslu á heimili sínu.
  • Að barnið sé á aldrinum 6 mánaða til 6 ára.
  • Að foreldri/foreldrar/forráðamenn eigi lögheimili í Ísafjarðarbæ
  • Staðfestingarblað frá viðkomandi dagmóður þarf að berast eigi síðar en 15. hvers mánaðar. Þó er heimilt að greiða tvo mánuði aftur í tímann frá fyrstu umsókn.
  • Ef foreldri er einstætt, eða í námi, þurfa eftirtalin vottorð að fylgja með umsókn: 
    •   Íbúavottorð/hjúskaparvottorð/vottorð um greiðslu meðlags
    •   Vottorð skóla um fullt nám foreldra  

Skóla- og tómstundasvið áskilur sér rétt til að fylgjast með framvindu og ástundun náms.

 

Eftirlit með dagforeldrum
Leikskóla- og sérkennslufulltrúi hefur umsjón og eftirlit með dagforeldrum Ísafjarðarbæjar. Upplýsingar um dagforeldra og leyfisveitingar gefur leikskólafulltrúi út. Um leyfisveitingar gildir reglugerð um dagforeldra og verða þeir að skila inn tilkskyldum vottorðum, umsögnum og fá úttekt á aðstöðu sinni áður en leyfi er veitt. Fjöldi dagmæðra í Ísafjarðarbæ er misjafn frá ári til árs. Upplýsingar um starfandi dagmæður gefur skóla- og tómstundasvið í síma 450 8000.

 

Langar þig að gerast dagforeldri

Hér eru upplýsingar um skilyrði fyrir leyfisveitingu, réttindi og skyldur dagforeldra, niðurgreiðslur o.fl. sem nauðsynlegt er að hafa í huga.


Nánar

Hverjir eru dagforeldrar í Ísafjarðarbæ?

Þeir aðilar sem bjóða upp á daggæslu nú eru:

 
Ólöf Árný Þorkelsdóttir Öfjörð 
Hrannargötu 3, Ísafirði 
456-1455, 868-9661  

 

Jóna Dagbjört Guðmundsdóttir

Seljalandsvegi 30, Ísafirði

Sími: 456-4769 og 868-4809

Bergdís Ingibergsdóttir
Urðarvegi 26
Sími: 616-7945

 

Una Lára Waage

Bakkavegi 19, Hnífsdal

Sími: 456-7797

 

Þórunn Halldórsdóttir

Bakkavegi 19, Hnífsdal

Sími: 8693412


Vefumsjón