Dægradvöl - heilsdagsskóli
Hvað er í boði á skóladagvistinni?
Nemendur í 2. bekk geta fengið aðstoð við heimanám. Stefnt er að því að bjóða upp á íþróttatíma 2-3var í viku. Reglulega er farið á bæjarbókasafnið þar sem haldnar eru sögustundir fyrir börnin. Að öðru leyti eru þau við frjálsan leik, föndur, spil o.fl. ýmist úti eða inni.
Greiðsla fyrir dvöl i heilsdagsskóla
Reikningar fyrir skóladagvistina eru greiddir eftir á. Þeir miðast við skráningu barnanna og er ekki dregið frá þótt börnin séu í leyfi eða veik hluta mánaðarins. Skráning getur verið til klukkan 14, 15, eða 16. Hægt er að skrá barnið 1-5 daga í viku. Vilji fólk breyta skráningu skal það gert um mánaðamót. Systkini fá 30% afslátt. Það gildir einnig ef börnin eiga yngri systkini í fullri gæslu á leikskólum Ísafjarðarbæjar eða hjá dagmæðrum sem skráðar eru hjá Ísafjarðarbæ, þá fær eldra barnið afslátt í Dægradvöl. Þriðja systkinið í gæslu hjá stofnunum bæjarins fær 100% afslátt.
Opnunartími
Dægradvöl er opin alla daga sem skólinn starfar, frá því að kennslu lýkur til kl. 16:00. Á starfsdögum og foreldradögum er líka opið.
Póstfang og sími
S: 450-8059 – póstfang: daegradvol@isafjordur.is
Umsókn um dvöl í heilsdagsskólanum
Anna Margrét Sigurðardóttir umsjónamaður sér um skráningu.
Sækja pdf.
