Gísli Halldór Halldórsson
Gísli Halldór Halldórsson er bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokk frá því í júní 2006. Gísli Halldór er forseti bæjarstjórnar, formaður fræðslunefndar, varaformaður umhverfisnefndar og varamaður í bæjarráði.
Gísli var formaður í nefnd um endurskoðun stjórnsýslu Ísafjarðarbæjar, sem starfaði 2007-2008. Jafnramt leiddi Gísli Halldór breytingar á bæjarmálasamþykktum Ísafjarðarbæjar árið 2010.
Gísli Halldór útskrifaðist úr meistaranámi í haf- og strandsvæðastjórnun frá Háskólasetri Vestfjarða í júní 2010. Námið snýr að byggða- og skipulagsmálum. Gísli Halldór er einnig með Cand. Oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Gísli er stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði og hefur starfað við skólann undanfarin ár sem fjármálastjóri.
Tölvupóstur:gislihh@isafjordur.is
