Albertína F. Elíasdóttir
Albertína Friðbjörg er fædd á Ísafirði 17.febrúar 1980. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Svavarsdóttir og Elías Oddsson. Hún á tvö systkini, Þórunni Önnu og Odd.
Albertína Friðbjörg varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2000, lauk BA-prófi í félagsfræði árið 2005 og er að ljúka meistaranámi í landfræði frá Háskóla Íslands.
Albertína starfar sem verkefnastjóri hjá Háskólasetri Vestfjarða, auk þess að kenna í frumgreinanámi á sama stað. Albertína hefur einnig lagt stund á píanónám við Tónlistarskóla Ísafjarðar frá 6 ára aldri, en hefur nú lokið 8. stigi og því hætt tónlistarnámi í bili.
Helstu áhugamál Albertínu eru félagsstörf, útivist og ljósmyndun.
Netfang: albertinae@isafjordur.is
