Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
962. fundur 06. febrúar 2017 kl. 08:05 - 09:03 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir varamaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið á Hornströndum - 2016110092

Lagður fram tölvupóstur Jóns Smára Jónssonar, f.h. Umhverfisstofnunar, dagsettur 31. janúar sl., vegna breytinga á samstarfshóp um gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið á Hornströndum.
Bæjarráð telur mikilvægt að bæjarfulltrúar og nefndarmenn bæjarins séu vel upplýstir um gang mála.

2.Milljarður rís 2017 - 2017020011

Lögð fram tölvupóstssamskipti Mörtu Goðadóttur, f.h. Landsnefndar UN Women á Íslandi, og Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, frá 30. og 31. janúar sl., vegna atburðarins Milljarður rís, þar sem fólk í yfir 200 löndum sameinast um að dansa til að sýna þolendum kynbundins ofbeldis samstöðu. Bæjarstjóri mun ávarpa dansgesti í upphafi og hleypa dansinum af stað, en dansað verður í Edinborgarhúsinu þann 17. febrúar nk. kl. 12 á hádegi.
Bæjarráð fagnar viðburðinum.

3.Svæðisskipulag fyrir Dalabyggð, Reykhólahrepp og Strandabyggð - beiðni um umsögn - 2016060025

Lagður fram tölvupóstur Matthildar Kr. Elmarsdóttur, verkefnisstjóra svæðisskipulagsnefndar Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar, dagsettur 2. febrúar sl. Óskað er eftir umsögn Ísafjarðarbæjar um greiningaskýrslu, sem fylgir tölvupóstinum, vegna svæðisskipulagsgerðar og þarf umsögnin að berast fyrir 24. febrúar nk.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Daníel Jakobsson yfirgefur fundinn kl. 8:19.

4.Styrkbeiðni frá SFÍ - 2017010047

Lögð fram styrkbeiðni Hólmfríðar Völu Svavarsdóttur, f.h. SFÍ, dags. 20. desember sl., vegna Unglingameistaramóts Íslands sem haldið verður á Ísafirði 23.-26. mars 2017.
Á 174. fundi íþrótta- og tómstundanefndar var tekið jákvætt í erindið og málinu vísað til bæjarráðs þar sem ekki er fé í fjárhagsáætlun fyrir styrk sem þessum. Nefndin veltir fyrir sér hvort hluti þess sem óskað er eftir styrk fyrir eigi að vera í eigu skíðasvæðisins og felur starfsmanni að kanna það. Nefndin vill ítreka að beiðnir sem þessar komi tímalega og áður en vinnu við fjárhagsáætlun er lokið.
Bæjarráð frestar málinu meðan beðið er eftir gögnum frá sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, sbr. bókun 174. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.

Gögn hafa nú borist frá sviðsstjóra og er lagt fram minnisblað Margrétar Halldórsdóttur, dagsett 31. janúar sl., með kostnaðaráætlun fyrir þann búnað sem skíðasvæðið ætti að eiga vegna skíðamóta.
Bæjarráð gerir athugsemd við það hve seint erindið kemur fram. Hins vegar er um að ræða jákvætt verkefni sem jafna má við uppbyggingarsamninga íþróttafélaganna.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs að gera viðauka til að mæta styrk upp á kr. 1.000.000,- skv. beiðni félagsins.
Daníel Jakobsson mætir aftur til fundarins eftir afgreiðslu dagskrárliðarins kl. 8:26.

5.Athugasemd við afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignagjöldum - 2017010113

Lagt fram bréf Ragnheiðar Hákonardóttur, dagsett 30. janúar sl., þar sem skorað er því á bæjarráð og bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að aðlaga viðmið sitt til afsláttar á fasteignagjöldum og holræsagjöldum elli- og örorkulífeyrisþega.
Bæjarráð þakkar ábendingarnar og bendir á breytingar í þessa veru sem gerðar voru á síðasta fundi bæjarstjórnar, þar sem viðmið voru hækkuð um 10% og þar með upp fyrir grunnllífeyri.

6.Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarlegum minjum - 2017010114

Lögð fram tillaga Ísafjarðarbæjar að landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarlegum minjum. Um er að ræða bæði langtíma- og skammtímaáætlun.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerðir 2017 - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2017010019

Lögð er fram fundargerð 846. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 27. janúar sl.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8.Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 147 - 1702003F

Fundargerð 147. fundar barnaverndarnefndar sem haldinn var 2. febrúar sl. fundargerðin er í 3 liðum.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:03.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?