Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
960. fundur 23. janúar 2017 kl. 08:05 - 10:22 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Fyrirspurn um kaup og kjör bæjarstjóra og sviðsstjóra - 2017010056

Lögð fram fyrirspurn Kristínar Hálfdánsdóttur, frá 391. fundi bæjarstjórnar, sem haldinn var 15. desember sl. ásamt minnisblaði Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, dags. 20. janúar sl., með svari við fyrirspurninni. Fyrirspurnin er svohljóðandi:

"Í ljósi þess að á þessum fundi bæjarstjórnar eru umræður um kaup og kjör bæjarfulltrúa og nefndarmanna, óska ég hér með eftir að á næsta bæjarráðsfundi verði gerð skriflega grein fyrir launakjörum bæjarstjóra og meðallaunum sviðsstjóra eins og þau eru í dag. Jafnframt verði gerð grein fyrir því hvernig kaup og kjör allra ofangreindra aðila hafa þróast frá upphafi þessa kjörtímabils og til dagsins í dag"
Lagt fram til kynningar.

2.Fyrirspurn um greiðslur til fyrirtækisins Plan 21 - 2016110082

Lagt er fram svar Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs og Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 20. janúar 2017, við fyrirspurn Jónasar Þórs Birgissonar, frá 16. nóvember sl., þar sem óskað er eftir upplýsingum um þær greiðslur sem bókaðar hafa verið hjá Ísafjarðarbæ á fyrirtækið Plan 21.
Lagt fram til kynningar.

3.Fyrirspurn - Sundhöll Ísafjarðar Samkeppni - 2015090052

Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 20. janúar 2017, þar sem fyrirspurn Jónasar Þórs Birgissonar, bæjarfulltrúa, frá 14. september 2016 er svarað.
Lagt fram til kynningar.

4.Undanþágur verkfallsheimilda 2017 - 2017010016

Lagt fram minnisblað Baldurs Inga Jónassonar, mannauðsstjóra, dagsett 17. janúar sl., þar sem óskað er staðfestingar bæjarráðs á drögum að auglýsingu í B-deild stjórnartíðinda vegna lista yfir þá starfsmenn sem ekki hafa verkfallsheimild.
Bæjarráð staðfestir auglýsingu um undanþágu verkfallsheimilda.

5.Samkomulag um aukna byggðafestu á Flateyri - 2015040035

Lagður fram tölvupóstur Sigurðar Árnasonar, f.h. Byggðastofnunar, dagsettur 16. janúar sl., þar sem óskað er eftir umsögn Ísafjarðarbæjar um drög að samkomulagi vegna nýtingar á aflamarki Byggðastofnunar á Flateyri. Um er að ræða 100 þorskígildistonna aukningu til tveggja ára og 99 þorskígildistonna aukningu vegna yfirstandandi fiskveiðiárs. Í gildi er samningur milli Byggðastofnunar og heimaaðila um nýtingu á 300 þorskígildistonnum vegna Flateyrar.
Bæjarráð lýsir ánægju með samning Byggðastofnunar um aflaheimildir til aukinnar byggðafestu á Flateyri.

6.Sjókvíaeldi Arnarlax í Ísafjarðardjúpi - drög að tillögu að matsáætlun - 2016090039

Lagt er fram bréf Hólmfríðar Bjarnadóttur, f.h. Skipulagsstofnunar, dags. 3. janúar sl., þar sem óskað er umsagnar Ísafjarðarbæjar um tillögu að matsáætlun sjókvíaeldis Arnarlax, en um er að ræða framleiðslu á 10.000 tonnum af laxi á ári í Ísafjarðardjúpi.
Erindið var lagt fram á 470. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 18. janúar sl. Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við framkomna tillögu að matsáætlun.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framkomna tillögu um matsáætlun.

7.Aukin framleiðsla á laxi í Arnarfirði - 2016020071

Lagt fram bréf Hólmfríðar Bjarnadóttur f.h. Skipulagsstofnunar dags. 5. janúar sl., þar sem óskað er umsagnar Ísafjarðarbæjar á tillögu að matsáætlun á sjókvíaeldi Artic Sea Farm, í Arnarfirði áætluð er framleiðsla á 4000 tonnum af laxi.
Á 470. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 18. janúar sl. var tillagan að matsáætluninni tekin fyrir.
Bæjarráð tekur undir bókun skipulags- og mannvirkjanefndar frá 470. fundi nefndarinnar:
"Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að tillagan samræmist ekki Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar 2012-2024. Nýtingaráætlunin gerir ekki ráð fyrir kvíaeldi á svæðinu milli Hvestudals og Bíldudals.
Ennfremur telur nefndin að það sé forgangsatriði að rannsóknir á burðarþoli Arnarfjarðar verði kláraðar sem fyrst, svo að fyrir liggi að fyrirhugað eldi sé innan þess ramma sem fjörðurinn þolir."

8.Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið á Hornströndum - 2016110092

Lagður er fram tölvupóstur Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, dags. 20. janúar 2017, þar sem gerð er grein fyrir því starfi sem hafið er í Samstarfsnefnd um gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið á Hornströndum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Umhverfisstofnun um aukna aðkomu Ísafjarðarbæjar og annarra hagsmunaaðila að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið á Hornströndum.

9.Landsáætlun um uppbyggingu innviða - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2017010019

Lagður fram tölvupóstur Arnar Þórs Halldórssonar, f.h. verkefnisstjórnar um gerð landsáætlunar um uppbygginu innviða til verndar náttúru og menningarlegum minjum, dagsettur 12. janúar sl. Verkefnisstjórn óskar eftir upplýsingar frá sveitarfélögum um hvaða verkefni þau telja brýnt að ráðist verði í á ferðamannastöðum á næstu þremur árum sbr. lög 20/2016 auk áætlaðs heildarkostnaðar fyrir hvert og eitt þeirra.
Bæjarráð felur bæjarritara að taka saman uppbyggingaráætlanir.

10.Sindragata 4a - umsókn um stofnframlag. - 2016100023

Lagðar eru fram tillögur að nýjum teikningum á húsnæði Sindragötu 4a, Ísafirði, sem fyrirhugað er að byggja með stofnframlagi frá Íbúðalánasjóði og Ísafjarðarbæ. Tillögurnar eru unnar í samræmi við tillögur úthlutunarnefndar Íbúðarlánasjóðs að breytingum á umsókn sem fram komu í bréfi Hermanns Jónssonar, f.h. Íbúðalánasjóðs, dags. 30. desember sl.
Bæjarráð felur bæjarritara að halda áfram að vinna að umsókn um stofnframlag til byggingar 11 íbúða að Sindragötu 4a.

11.Íbúðamarkaðurinn á Ísafirði - 2017010050

Lögð er fram til kynningar greining Reykjavík Economics ehf. á íbúðamarkaðinum í Ísafjarðarbæ, frá desember 2016.
Lagt fram til kynningar og áframhaldandi vinnslu.

12.Suðurtangi, nýbygging gatna. - 2017010018

Lagt er fram bréf sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 19. janúar 2017, vegna verksins Suðurtangi, nýbygging gatna, hönnun gatna og veitna. Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs leggur til að samið verði við Tækniþjónustu Vestfjarða um verkið.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, að taka tilboði Tækniþjónustunnar í verkið.

13.Lónið Suðureyri - 2017010067

Lagður fram tölvupóstur Huldu Rósar Rúriksdóttur hrl., f.h. Lögmanna Laugavegi 3, dagsettur 19. janúar sl., þar sem óskað er eftir afstöðu Ísafjarðarbæjar til samnings um afnotarétt á Lóninu á Suðureyri. Enn fremur er lagt fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, þar sem gerð er grein fyrir þeim samningi sem um ræðir og forsögu hans ásamt afriti af samningnum.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá Fiskistofu um hvort Jens Daníel Hólm hafi fengið útgefið rekstrarleyfi til fiskeldis.

14.Skólamál á Flateyri - 2016110039

Á 958. fundi bæjarráðs var erindisbréfi fyrir samráðshóp um leik- og grunnskólastarf á Flateyri vísað til umsagnar í fræðslunefnd. Enn fremur var erindisbréfið sent hverfisráði Önundarfjarðar til umsagnar. Lögð er fram umsögn 376. fundar fræðslunefndar auk umsagnar fundar hverfisráðs Önundarfjarðar frá 18. janúar sl.
Bæjarráð fellst á tillögu hverfisráðs Önundarfjarðar um að fulltrúum í starfshópnum verði fjölgað, þannig að það verði tveir fulltrúar foreldra, annar frá leikskólanum og hinn frá grunnskólanum.

Að öðru leyti samþykkir bæjarráð erindisbréfið og sendir til staðfestingar bæjarstjórnar.

Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að Nanný Arna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi verði fulltrúi bæjarstjórnar og Unnur Björk Arnfjörð, skólastjóri Grunnskóla Önundafjarðar, verði fulltrúi skóla- og tómstundasviðs.

15.Hestamannafélagið Hending - kröfugerð vegna reiðvallar - 2016050078

Lögð fram drög að samkomulagi við Hestamannafélagið Hendingu, ásamt umsögn HSV um drögin, frá 11. janúar sl. Drögin voru lögð fram á 174. fundi íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 17. janúar sl.
Nefndin gerir ekki athugasemd við drögin. Sif Huld Albertsdóttir tók ekki afstöðu til samkomulagsins og gerir athugasemd við að fullnægjandi gögn hafi ekki borist fyrr en á fundinum.
Marzellíus Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi og áheyrnarfulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarráði og Jónas Þór Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:

"Í samningsdrögum þeim sem nú liggja fyrir um byggingu reiðskemmu í Engidal er margt sem alvarlegar athugasemdir má gera við. Hér verður þó einungis staldrað við eitt veigamikið atriði.
Áheyrnarfulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarráði Ísafjarðarbæjar og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði hvetja meirihluta bæjarstjórnar til þess að fresta samkomulagi um reiðskemmu þar til niðurstaða liggur fyrir um hvernig rekstri skemmunnar verður háttað í framtíðinni. Það hlýtur að teljast lágmarkskrafa að upplýsingar um framtíðarskuldbindingu sveitarfélagsins séu skýrar áður en lagt er út í miklar fjárfestingar sem íbúar bæjarins þurfa að taka endanlega ábyrgð á."

Kristján Andri Guðjónsson, bæjarfulltrúi Í-listans, Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-listans og Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri leggja fram eftirfarandi gagnbókun:

"Nú hillir undir samkomulag milli Ísafjarðabæjar og Vegagerðarinnar um bætur vegna aðstöðunnar við Búðartún í Hnífsdal og á milli Ísafjarðarbæjar og Hestamannafélagsins Hendingar um uppbyggingu nýrrar aðstöðu í Engidal.
Þetta mál og uppgjör þess hefur dregist allt of lengi og vonandi geta hestamenn nú byggt upp góða aðstöðu í Engidal sem nýtast mun öllum iðkendum þessarar íþróttar sem er sú þriðja vinsælasta á Íslandi hvað þátttökufjölda varðar. Bygging reiðskemmu í Engidal mun vonandi hleypa endurnýjuðum krafti í starfsemi Hendingar og verða félaginu til mikils sóma.
Sjálfsagt er að gefa sér tíma til að gera þær breytingar á samningsdrögunum sem nauðynlegar teljast og verða þau lögð fram á fundi bæjarstjórnar þann 2. febrúar n.k."

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna umbeðin fylgigögn með samningnum og vísar honum til samþykktar í bæjarstjórn 2. febrúar n.k.

16.Starfshópur um framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa - 2016090040

Lögð eru fram drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa.
Bæjarráð óskar eftir umsögn frá hafnarstjórn og leggur erindisbréfið fram að nýju þegar umsögn hefur borist.

17.Uppbygging knattspyrnumannvirkja á Torfnesi - ósk um fund með Ísafjarðarbæ - 2017010066

Lagður fram tölvupóstur Sigríðar Láru Gunnlaugsdóttur, framkvæmdastjóra Héraðssambands Vestfirðinga, dagsettur 19. janúar sl., þar sem hún kemur á framfæri óskum Íþróttafélagsins Vestra um fund með Ísafjarðarbæ til að ræða uppbyggingu knattspyrnumannvirkja á Torfnesi.
Bæjarráð verður við beiðni íþróttafélagsins Vestra um fund og felur bæjarstjóra að finna heppilegan fundartíma.

18.Styrkbeiðni frá SFÍ - 2017010047

Lögð fram styrkbeiðni Hólmfríðar Völu Svavarsdóttur, f.h. SFÍ, dags. 20. desember sl., vegna Unglingameistaramóts Íslands sem haldið verður á Ísafirði 23.-26. mars 2017.

Á 174. fundi íþrótta- og tómstundanefndar var tekið jákvætt í erindið og málinu vísað til bæjarráðs þar sem ekki er fé í fjárhagsáætlun fyrir styrk sem þessum. Nefndin veltir fyrir sér hvort hluti þess sem óskað er eftir styrk fyrir eigi að vera í eigu skíðasvæðisins og felur starfsmanni að kanna það. Nefndin vill ítreka að beiðnir sem þessar komi tímalega og áður en vinnu við fjárhagsáætlun er lokið.
Bæjarráð frestar málinu meðan beðið er eftir gögnum frá sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, sbr. bókun 174. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.

19.Götusópur fyrir Þjónustumiðstöð - 2016110007

Lagt er fram bréf sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 20. janúar 2017, vegna kaupa á nýjum götusóp fyrir Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar. Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs leggur til að samið verði Kraft hf. um kaup á nýjum götusóp fyrir Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð samþykkir tillögu Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, um að taka tilboði Krafts hf. um kaup á götusóp.

20.Samþykkt um fráveitu - 2016040069

Lögð fram samþykkt um fráveitu 2016 sem var samþykkt af heilbrigðisnefnd með vísan í bréf Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, dags. 6. nóvember 2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkt um fráveitu í Ísafjarðarbæ verði samþykkt.

21.Afslættir elli- og örorkulífeyrisþega - Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047

Lagt er fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 17. janúar sl., með greiningu á afslætti fasteignagjalda 2017 til elli- og örorkulífeyrisþega.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að farið verði að tillögu 1 sem fram kemur í minnisblaði fjármálastjóra, þ.e. að tekjumörk 2017 verði hækkuð um 10% frá árinu 2016. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka vegna tillögunnar.

22.Mánaðaryfirlit 2016 - 2016050081

Lagt er fram minnisblað Helgu Ásgeirsdóttur, verkefnastjóra á fjármálasviði, dags. 20. janúar sl, um skatttekjur og laun frá janúar til desember 2016. Þar má sjá að útsvarstekjur eru 13,9 milljónum króna yfir áætlun og eru 1.776 milljónir króna fyrir árið. Jöfnunarsjóður er 139 milljónum króna yfir áætlun eða 860 milljónir króna. Að lokum er launakostnaður 20,7 milljónum króna yfir áætlun en kostnaðurinn nemur 2.082 milljónum króna fyrir árið 2016.
Helga Ásgeirsdóttir fer yfir mánaðaryfirlit ársins 2016.
Gestir yfirgefa fundinn kl. 10:13.

Gestir

  • Helga Ásgeirsdóttir, sérfræðingur á fjármálasviði - mæting: 10:01
  • Edda María Hagalín, fjármálastjóri - mæting: 10:01

23.Íbúasamtökin Hnífsdal - Hverfisráð Ísafjarðarbæ - 2011030002

Lagt er fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 20. janúar 2017, varðandi nýtingu framkvæmdafjár Íbúasamtaka Hnífsdals vegna ársins 2016.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.

24.Hverfisráð Önundarfjarðar - Málefni hverfisráða 2017 - 2017010043

Lögð er fram til kynningar fundargerð Hverfisráðs Önundarfjarðar frá 18. janúar sl.
Lögð fram til kynningar.

25.Fræðslunefnd - 376 - 1701011F

Fundargerð 376. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 19. janúar sl., fundargerðin er í 4 liðum.
Lögð fram til kynningar.

26.Íþrótta- og tómstundanefnd - 174 - 1701009F

Fundargerð 174. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 17. janúar sl., fundargerðin er í 4 liðum.
Lögð fram til kynningar.

27.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 470 - 1701013F

Fundargerð 470. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 18. janúar sl., fundargerðin er í 4 liðum.
Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:22.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?