Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
934. fundur 20. júní 2016 kl. 08:05 - 09:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir varamaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Framför - beiðni um styrk í formi niðurfellingar á gatnagerðargjöldum - 2014100003

Lagður er fram tölvupóstur stjórnar Framfarar frá 15. júní sl., varðandi sáttabeiðni vegna húss í Dagverðardal.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðunni. Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að viðauka vegna málsins og ganga frá samningi við Framför með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.

2.Hlaupahátíð á Vestfjörðum 2012-2016 - 2012070021

Lagt er fram bréf Guðbjargar Rósar Sigurðardóttur, f.h. stjórnar Hlaupahátíðar á Vestfjörðum, dags. 22. maí sl., varðandi stuðning Ísafjarðarbæjar við Hlaupahátíð á Vestfjörðum 2016.
Bæjarráð samþykkir beiðni Hlaupahátíðarinnar.

3.Úttekt á reglum um rekstrarleyfi gististaða - 2016060047

Umræður um útgáfu rekstrarleyfa gististaða í Ísafjarðarbæ.
Bæjarráð felur bæjarritara að vinna áfram að málinu og leggja fram minnisblað fyrir næsta fund.

4.Hverfisráð Ísafjarðarbæ - 2011030002

Lögð er fram fundargerð Hverfisráðs Íbúasamtaka í Hnífsdal, sem haldinn var 23. apríl sl. ásamt tillögum að nýtingu framkvæmdafjár ársins 2016.
Fundargerðin lögð fram til kynningar. Bæjarráð felur bæjarritara að vinna með Hverfisráði að hugmyndum um nýtingu framkvæmdafjár.

Fundi slitið - kl. 09:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?