Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
930. fundur 23. maí 2016 kl. 08:05 - 09:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Tjöruhús - brunavarnir - 2016050032

Lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands dags. 6. maí um brunavarnir í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað á Ísafirði.
Bæjarráð felur starfsmönnum Eignasjóðs og slökkviliðs að fara yfir málið.

2.Stjórnsýsluhúsið - hækkun rekstrarframlaga - 2016050019

Lagður fram ársreikningur og bréf gjaldkera Stjórnsýsluhússins á Ísafirði dags. 2. maí 2016 um hækkun rekstrarframlaga.
Bæjarráð óskar eftir því að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna málsins til að mæta auknum útgöldum.

3.Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýri - 2014080017

Lagt er fram bréf Björgvins Rafns Sigurðssonar, f.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dags. 6. maí sl.
Lagt fram til kynningar.

4.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lagt er fram bréf Jónasar Guðmundssonar, sýslumanns á Vestfjörðum, dags. 12. apríl sl., ásamt umsókn dags. 1. júní 2015 um heimild til að reka gistiheimili í flokki II að Drafnargötu 4, Flateyri.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum frá Sýslumanni.

5.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lögð fram umsagnarbeiðni, dags. 11. maí 2016, frá Rósu Ólafsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum ásamt umsókn um rekstrarleyfi að Skipagötu 3 á Suðureyri.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

6.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Rósu Ólafsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 9. maí 2016, ásamt umsókn um gistileyfi að Urðarvegi 23 á Ísafirði.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum frá Sýslumanni.

7.Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026

Lagt er fram bréf Rósu Ólafsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 29. apríl sl., ásamt umsókn um gistileyfi að Grundargötu 2, Ísafirði.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum frá Sýslumanni.

8.Framlög til stjórnmálasamtaka 2014-2016 - 2014020078

Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 18. maí varðandi framlög til stjórnmálaflokka 2015 og 2016.
Bæjarráð óskar eftir því að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun til að mæta auknum útgjöldum.

9.Endurbætur á bílskúrum við Fjarðarstræti 20, tillaga - 2015080079

Lögð eru fram drög að kauptilboði á skúr við Fjarðarstræti 20, Ísafirði.
Bæjarráð samþykkir kaup á eigninni samkvæmt fyrirliggjandi tilboði.

10.Bréf til bæjarstjórnar varðandi dagvistunarmál - 2016050050

Lagt fram bréf dags. 16. maí 2016 frá foreldrum barna á Eyrarskjóli fæddum 2011 ásamt frumgögnum könnunar sem gerð var meðal foreldra.
Bæjarráð þakkar fyrir bréfið og vísar því til umfjöllunar í fræðslunefnd. Ráðið bendir á að engar ákvarðanir hafa enn verið teknar og munu allar ábendingar verða teknar til vandlegrar íhugunar.

11.Ferð læsisráðgjafa til Ísafjarðarbæjar - 2015120021

Lögð fram skýrsla vegna heimsóknar ráðgjafanna Brynju Baldursdóttur og Ingibjargar Þ. Þorleifsdóttur, dagsett 11. maí 2016.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í fræðslunefnd.

12.Nýherji hf. - samningur um tölvuþjónustu - 2012100042

Lögð fram fyrirspurn Kristjáns Andra Guðjónssonar, bæjarfulltrúa, dags. 19. maí 2016, um reynslu af samningi Ísafjarðarbæjar og Nýherja.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

13.List fyrir alla - 2016050071

Lagður fram tölvupóstur Elfu Lilju Gísladóttur, dags. 29. apríl, þar sem beðið er um húsnæði fyrir 2-3 sýningar Íslenska dansflokksins að hausti.
Bæjarráð er tilbúið að lána eigið húsnæði til verkefnisins að því gefnu að því fylgi ekki aukin útgjöld.

14.Lagfæringar á Bárðarslipp - 2016050068

Lögð fram fyrirspurn Marzellíusar Sveinbjörnssonar, bæjarfulltrúa, um kostnað vegna lagfæringa á Bárðarslipp.
Bæjarstjóri leggur fram svör við fyrirspurn Marzellíusar.

15.Samningur um þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta - 2016050072

Lagður fram samningur um þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta við Landsbankann.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga um þjónustuna.

16.Fjórðungssamband Vestfirðinga - ýmis mál og fundargerðir 2016/2017 - 2016020005

Lagt fram erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 12. maí 2016 varðandi kynningu á þinggerð 61. fjórðungsþings og erindi vegna hækkunar árstillags á árinu 2016.
Bæjarráð óskar eftir því að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun til að mæta auknum útgjöldum.

17.Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048

Lagt fram erindi frá Guðmundi Rafni Kristjánssyni varðandi snjóflóðavarnir í Kubba.
Bæjarstjóra er falið að svara bréfritara.

18.Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 143 - 1605016F

Fundargerð 143. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum sem haldinn var 19. maí sl. Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.

19.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 - 1604025F

Fundargerð 456. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 11. maí sl. Fundargerðin er í 13 liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir matslýsingu Verkíss varðandi deiliskipulagsgerð við munna Dýrafjarðarganga, annarsvegar við Dranga og hinsvegar við Rauðsstaði. Matslýsing verður kynnt opinberlega skv. skipulagslögum.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga A verði samþykkt. Í samræmi við gildandi deiliskipulag og miðast við gerð þjónustuvegar með tveimur vinnuplönum á Hafrafellshálsi.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og telur að áformin, séu innan þess svigrúms sem deiliskipulagið heimilar.
  • 19.5 2016020047 Fjárhagsáætlun 2017
    Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Tillaga byggingarfulltrúa varðandi endurnýjun gjaldskrár lögð fram til kynningar.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar afgreiðslu málsins og óskar frekari gagna.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar afgreiðslu erindanna og leggur til að deiliskipulagið verði endurskoðað í samvinnu við hagsmunaaðila.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn, að Skeljungi hf. verði úthlutuð umrædd lóð með þeim reglum sem um hana gilda.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar sbr. lið 7
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir erindið.
  • 19.11 2016050007 Suðurtangi - Tjaldsvæði
    Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir þjónustuhús á tjaldstæði á Suðurtanga til 1. mars 2017.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir frekari samráði við umsækjendur.
  • Skipulags- og mannvirkjanefnd - 456 Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar afgreiðslu málsins, frekari gagna er óskað.

20.Félagsmálanefnd - 409 - 1605005F

Fundargerð 409. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 10. maí sl. Fundargerðin er í 7. liðum.
Lagt fram til kynningar.
  • Félagsmálanefnd - 409 Lagt fram til kynningar.
  • Félagsmálanefnd - 409 Umræður um tillögur greinargerðarinnar og hugmyndir að forgangsröðun. Félagsmálanefnd leggur til að áhersla verði lögð á eftirtalin forgangsverkefni: 1. Aðgengi og bílaplan við Pollgötu 4. 2. Aðgengi við íþróttahúsið á Torfnesi samkvæmt tillögum í greinargerð Verkís. 3. Aðgengi við íþróttahúsið á Þingeyri. Nefndin felur starfsmanni að koma á framfæri athugasemdum varðandi útfærslu á aðgengi í greinargerðinni.
  • 20.4 2016020047 Fjárhagsáætlun 2017
    Félagsmálanefnd - 409 Félagsmálanefnd felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að gera breytingar á gjaldskránni í samræmi við umræður á fundinum.
  • Félagsmálanefnd - 409 Lagt fram til kynningar.
  • Félagsmálanefnd - 409 Lagt fram til kynningar.
  • 20.7 2012120016 Fjárhagsaðstoð
    Félagsmálanefnd - 409 Umræður um nýjar reglur. Starfsmanni falið að vinna áfram að reglunum.

21.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 27 - 1605006F

Fundargerð 27. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 10. maí. Fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?