Hitamet voru slegin á Vestfjörðum um síðustu helgi þegar 20 stiga hiti mældist í fyrsta sinn í september á mannaðri veðurstöð, bæði í Æðey í Ísafjarðardjúpi og að Hólum í Dýrafirði. Á Ísafirði var hitametið á þessum tíma árs jafnað. Laugardagurinn var hlýjasti dagurinn en þá féllu hitamet víða um land. Mestur hiti mældist á Möðruvöllum í Hörgárdal, eða 24,9 stig. „Af öllum landsmönnum held ég að Ísfirðingar hafi nú samt upplifað einna sérstökustu nóttina í veðurfarslegu tilliti. Þar var hitinn að hækka í allt gærkvöld og náði hámarki um 18,1 gráðu nærri miðnætti. Hann „féll“ síðan niður í 13 stig kl. 02,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á bloggsíðu sinni á laugardag.